Spurningin getur komið upp í hugann við ólíklegustu aðstæður. Kannski á fundi um verkefni vikunnar, í bílnum á leiðinni heim úr vinnunni, að morgni eftir djamm eða bara þegar þú burstar tennurnar að kvöldi. Hún getur flogið fram hjá eins og fluga að sumri sem þú bægir frá þér á sekúndubroti eða verið ágeng og kallað á tafarlausa athygli eins og grátandi barn. Spurningin kom til mín á Tinder-deiti með konunni sem ég hef verið giftur í 30 ár.
Fyrsta (og eina) Tinder-deitið
Ágústa, konan sem ég giftist árið 1995, bauð mér á stefnumót á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Þegar eftirrétturinn kom dró hún upp úr veskinu útprentaðan lista sem hafði „15 spurningar til að spyrja á fyrsta Tinder-deiti“. Mér fannst þetta spennandi, enda fyrsta og mjög líklega eina Tinder-deit ævinnar. Við flissuðum eins og kjánar yfir atriðunum á listanum og svo kom spurning sem ég staldraði við: „Hvað myndi …




























































Athugasemdir