Samgöngumál bitbein og almennar hugmyndir um rekstur

Odd­vit­ar stjórn­mála­fram­boða fyr­ir borg­ar­tjórn­ar­kosn­ing­arn­ar tók­ust á í Tjarn­ar­bíói. Þar mátti greina stefn­ur og áhersl­ur flokk­anna, sem hverf­ast um sam­göngu­mál, rekst­ur, skipu­lag og leik­skóla­mál.

Samgöngumál bitbein og almennar hugmyndir um rekstur
Oddvitaspjall Heimildarinnar Heimildin stóð fyrir opnu oddvitaspjalli í Tjarnarbói þar sem oddvitar voru spurðir út í stefnur sínar. Mynd: Golli

Megináherslur sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík eru í stuttu máli fjórar. Það eru húsnæðismál, leikskólar, fjármál og svo samgöngumál.

Helsta bitbeinið virðist vera ólíkar útfærslur á samgöngusáttmálanum en Miðflokkurinn er sá eini sem hefur lofað að beinlínis endurskoða sáttmálann. Þannig hafnar Miðflokkurinn Borgarlínu en er á sama tíma fylgjandi ýmsum framkvæmdum sem eru innan sáttmálans, svo sem framkvæmdum við Miklubraut og Sæbraut. Afstaða Sjálfstæðisflokksins er blendnari. Oddviti borgarstjórnarflokks Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, vill endurskoða sáttmálann með það að leiðarljósi að koma framkvæmdum framar í röðina, svo sem göngum undir Miklubraut. Ákveðin framkvæmdaröð er í samgöngusáttmálanum sem nær til allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

Illa samið?

„Það var illa samið fyrir Reykjavík,“ sagði oddviti Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir, í oddvitasamtali Heimildarinnar í Tjarnarbíói í lok apríl. „Allur fókus var settur á Borgarlínuna en mikilvægasta samgöngubótin er Miklabrautin. Hún er gríðarlega dýr, kostar 60 milljarða og líklega meira áður en yfir lýkur. Sú framkvæmd er aftast í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
4
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
3
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár