Engin gögn studdu málatilbúnað Páls

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri sak­aði Þóru Arn­órs­dóttur um að hafa brotið gegn sér og dró hana fyrir dóm. Dómari sagði engin gögn liggja því til stað­fest­ingar. „Mála­til­bún­aður stefn­anda hér er með öllu órök­studdur.“ Honum var gert að greiða máls­kostnað Þóru og Rík­is­út­varps­ins.

Engin gögn studdu málatilbúnað Páls

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri krafð­ist millj­óna í miska­bætur vegna meintra brota starfs­manna RÚV gegn frið­helgi hans en hafði ekki erindi sem erf­iði. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði Rík­is­út­varpið og Þóru Arn­órs­dóttur, fyrr­ver­andi rit­stjóra Kveiks, af öllum kröfum skip­stjór­ans.

Með málið til rannsóknar í þrjú ár

Málið má rekja til umfjöll­unar Stund­ar­innar og Kjarnans, for­vera Heim­ild­ar­innar, um hóp fólks sem starf­aði fyrir Samherja og kall­aði sig skæru­liða­deild­ina. Hópurinn lagði á ráðin um hvernig hægt væri að hafa áhrif á máls­með­ferð yfir­valda vegna mútu­greiðslna Samherja í Namibíu og almenn­ings­á­litið, meðal ann­ars með því að vega að æru upp­ljóstr­ara og blaða­manna.

Í kjöl­farið leit­aði Páll til lög­reglu vegna brota gegn frið­helgi einka­lífs.

Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hóf rann­sókn á mál­inu í maí 2021. Sex blaða­menn fengu stöðu sak­born­ings. Blaða­menn­irnir störf­uðu á Stund­inni, Kjarn­anum og RÚV. Í þrjú ár voru blaða­menn­irnir með stöðu sak­born­ings, þar til rann­sókn máls­ins var hætt.

…

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hver skyldi nu greiða fyrir lögmannskostnað Páls?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár