Unglingar geta pantað áfengi og fengið afhent á 20 mínútum

Land­læknisembætt­ið kann­aði hvort ung­menni ættu greið­an að­gang að áfengi í gegn­um net­síð­ur sem selja slík­an varn­ing. Í ljós kom að að­eins fimm sölu­síð­ur af fjór­tán krefjast stað­fest­ing­ar á aldri.

Unglingar geta pantað áfengi og fengið afhent á 20 mínútum

Aðeins fimm af fjórtán netverslunum með áfengi gerðu kröfu um rafræn skilríki, eða í 36 prósent tilfella. Þetta kemur fram í könnun landlæknisembættisins þar sem skoðað var hvort ungmenni gætu keypt áfengi og fengið afhent í gegnum sölusíður með áfengi. Gerðar voru tilraunir til þess að kaupa áfengi hjá 14 netsíðum. Niðurstaðan er svört, en könnunin sýndi að það væri auðvelt fyrir ungmenni að fá áfengi afhent þrátt fyrir rafrænt eftirlit sem var sannarlega til staðar hjá fimm fyrirtækjum. Dæmi eru um að áfengið hafi verið afhent ungmennum í bílakjöllurum af Wolt-sendlum sem gerðu oftast enga tilraun til þess að sannreyna aldur þeirra sem tóku við áfenginu. Heimildin kannaði hvort ungmenni gætu fengið áfengi afhent og braut sendill Wolt áfengislög í þeirri tilraun. Framkvæmdastjóri Wolt sagði það valda sér vonbrigðum.

Tvítugur, já eða nei?

Af þeim níu netverslunum sem ekki báðu um rafræn skilríki var óskað eftir annars konar aldursstaðfestingu …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Held að unglingar hafi aldrei átt í neinum vandræðum með að ná sér í áfengi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Tæknistreita leiddi til skógarbaða
2
Viðtal

Tækn­istreita leiddi til skóg­ar­baða

Shinrin-yoku, eða skóg­ar­bað eins og það út­leggst á ís­lensku, er heiti á gagn­reyndri að­ferð til streitu­los­un­ar þar sem er ver­ið að beina hug­an­um og skyn­fær­un­um með­vit­að að nátt­úr­unni. Shinrin-yoku var við­bragð við versn­andi lýð­heilsu í Jap­an og er nú hluti af heil­brigðis­kerf­inu þar. Hér hafa þær Gunn­þóra Ólafs­dótt­ir og Ír­is Lana Birg­is­dótt­ir í sam­vinnu við Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­vík­ur boð­ið upp á skóg­ar­böð í Heið­mörk, sem hafa þó ekk­ert með eig­in­leg böð að gera.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár