Mikill ávinningur fyrir líkama og sál

„Ég hef alltaf verið mikil sánu­kona,“ segir Sigrún Dav­íðs­dóttir sem stofn­aði Sauna­setrið á Hvamms­tanga. Þar fara fram gusu­tímar í fal­legu umhverfi og ferða­menn eru boðnir vel­komnir.

Mikill ávinningur fyrir líkama og sál

Sigrún Dav­íðs­dóttir setti á fót Sauna­setrið á Hvamms­tanga síð­ast­liðið haust. Þar fara fram svo­kall­aðir gusu­tímar þar sem fólk er inni í tals­verðum hita á milli þess sem það stígur út fyrir og kælir sig. Við­tök­urnar við setr­inu eru mjög góðar og er heima­fólk ánægt með fram­takið, enda eru ávinn­ingar af þess­ari iðju marg­vís­legir.

Sigrún segir að hug­myndin hafi fæðst fyrir rúmu ári síðan, en dóttir hennar er gusu­m­eist­ari í Reykja­vík og hafði Sigrún sótt tíma til hennar sem hafi kveikt áhuga hennar á að opna setur á Hvamms­tanga. „Ég var til­tölu­lega nýflutt hingað og fannst vanta eitt­hvað svipað hér eins og er víða fyrir sunnan. Ég hef líka alltaf verið mikil sánu­kona, ég stund­aði svo­kallað sweat fyrir ein­hverjum árum líka og það varð úr að við opn­uðum í októ­ber í fyrra. Ég var svo heppin að fá fal­leg­asta stað­inn hér í bænum, niðri í fjöru, við hlið­ina á Sela­setr­inu og svo er veit­inga­stað­ur­inn Sjáv­ar­borg hérna líka. Hér er frá­bært útsýni og það hafa verið svaka­lega góðar mót­tökur hér hjá okkur.“

Býður ferðamenn velkomna

Að sögn Sigrúnar byrj­aði hún að sjá um þetta ein og var með umrædda gusu­tíma þrisvar í viku á ákveðnum dögum á ákveðnum tímum. Síðar tók hún svo inn starfs­mann á móti sér sem er einnig með tíma. „Þessir tímar eru í eina klukku­stund í senn, fólk kemur í sund­fötum, slopp og inni­skóm. Það er ekki sturtu­að­staða hér, en ég er með box fyrir föt og snaga fyrir sloppa. Þetta eru þrjár lotur í fimmtán mín­útur í senn, fólk er fyrst í hita og fer svo út að kæla sig í nokkrar mín­útur. Sumir fara í sjó­inn og aðrir standa bara úti í og kæla sig í vind­inum. Þannig fólk fer inn og út til skiptis.

„Ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa opnað þetta hér, ég sé áhug­ann og það hefur mynd­ast skemmti­legt sánu­sam­fé­lag

Fólk hefur verið að koma héðan og þaðan að, en ég er líka með einka­tíma og tek á móti hópum. Ég var til dæmis með tíu konur frá Land­spít­al­anum í Reykja­vík á dög­unum. Svo erum við að fara af stað með aug­lýs­inga­her­ferð fyrir erlenda ferða­menn, þar sem þeir fara að koma meira hingað á næst­unni. Okkur langar auð­vitað að bjóða þau vel­komin til okkar líka.“ 

Fór blint af stað 

Sigrún seg­ist hafa farið alveg blint af stað með þetta á Hvamms­tanga, en segir að við­tök­urnar hafi verið frá­bærar. Það er ekki önnur slík starf­semi á Norð­ur­land­inu fyrir utan Akureyri að sögn Sigrúnar, en hún segir að hægt sé að finna gusu­tíma á Akranesi, í Stykk­is­hólmi, Borg­ar­nesi og svo séu margir staðir í Reykja­vík líka. „Við komum til með að vera með við­burði í sumar af og til, til dæmis sem tengj­ast bæj­ar­há­tíð­inni hér í bæ sem verður í júlí. Svo stefnum við á að fá inn nýjan gusu­m­eist­ara á næst­unni, þannig að það er nóg fram undan,“ segir Sigrún full af eld­móði. 

Að sögn Sigrúnar stundar fólk á öllum aldri gusurnar og segir hún að yngsti gest­ur­inn hafi verið 15 ára, en að þau taki ekki á móti yngri börnum en það. „Svo er þetta alveg upp úr, alveg allur aldur. Fólk er að koma úr sveit­inni og úr næstu nágranna­sveit­ar­fé­lögum en stærsti kúnna­hóp­ur­inn er fólk sem býr hér á Hvamms­tanga. Ég hlakka til að fá fleiri hópa, þetta er svo mikil sam­vera og félags­skapur, það er mikil nánd og það mynd­ast góð orka, sem gerir mikið fyrir fólk.“ 

Þakklát fyrir að hafa látið vaða

Sigrún segir að ávinn­ingur af gus­unni sé marg­vís­legur, bæði fyrir lík­ama og sál. „Þegar fólk fer inn í svona hita og kælir sig á móti, þá svitnar það og það verður mikil hreinsun á húð­inni. Hjartað pumpar í hit­anum og hægir svo á sér í kuld­anum. Þetta er svo­lítið eins og að vera í lík­ams­rækt, það er mikil brennsla í gangi og svo er þetta streitu­los­andi, fólk seg­ist finna mik­inn mun á sér, til dæmis varð­andi kvíða. Það slakar á og þetta bætir svefn líka, maður sefur eins og eng­ill eftir svona tíma. Svo þegar fólk kemur oftar þá fer fólk að finna langvar­andi ávinn­ing. En maður finnur samt alveg breyt­ingu strax, þetta er mjög gott fyrir ofnæm­is­kerfið og bara allt kerfið í raun. Ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa opnað þetta hér, ég sé áhug­ann og það hefur mynd­ast skemmti­legt sánu­sam­fé­lag. Við erum með klippikort og fólk kemur aftur og aftur og kemur með vini og ætt­ingja með sér og hóp­ur­inn stækkar sífellt.“ 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár