Algör viðsnúningur á afstöðu til stöðu efnahagsmála

Meiri­hluti íslensku þjóð­ar­innar telur efna­hags­stöð­una á Íslandi slæma. Aðeins í efstu ald­urs­hóp­unum eru fleiri sem telja stöð­una góða. Ýmis teikn eru á lofti sem gætu skýrt þess afstöðu en verð­bólga, vextir og atvinnu­leysi eru á upp­leið á sama tíma og fast­eigna­mark­aður nálg­ast frost­mark.

Algör viðsnúningur á afstöðu til stöðu efnahagsmála
Upp og niður Vextir hafa farið upp en hlut­fall þeirra sem telja stöðu efna­hags­mála góða hefur á sama tíma farið niður. Mynd: Golli

Rúmlega helm­ingur Íslend­inga telur efna­hags­stöð­una slæma. Við­snún­ingur hefur orðið á afstöðu þjóð­ar­innar á skömmum tíma. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar Maskínu. Alls telja 55 pró­sent þjóð­ar­innar efna­hags­stöð­una slæma, en í apríl fyrir ári síðan var hlut­fallið 38 pró­sent.

Meðal fólks á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri telja 60 pró­sent stöð­una slæma. Eldri ald­urs­hópar í könn­un­inni, sér­stak­lega 70 ára og eldri, eru mun jákvæð­ari. Sá hópur er, sam­kvæmt opin­berum gögnum, lík­legri til að eiga hús­næði, skulda minna og eiga meira eigið fé, sem hann getur ávaxtað í hávaxtaum­hverf­inu sem nú er.

Viðhorf þjóð­ar­innar til efna­hags­stöð­unnar virð­ist hald­ast í hendur við þróun vaxta og verð­bólgu. Þegar vextir voru á nið­ur­leið var þjóðin bjart­sýn en nú þegar vextir og verð­bólga eru aftur á upp­leið hefur við­horfið líka snú­ist við.

Nið­ur­stöðurKönnunin fór fram dag­ana 8. til 16. apríl og voru svar­endur 992 tals­ins.
…
Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú hægt að orða hlutina með ýmsum hætti. Hér að ofan gæti það hafa hljómað svona til dæmis:
    "Þá hækkaði kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,2 prósent á síðasta ári og hefur farið hækkani á hverju ári frá 2013, utan ársins 2022 þegar kórónuveirufaraldurinn hafði sett allt efnahagslífið úr skorðum og kaupmátturinn lækkaði um 0,3 prósent. Hækkun launa hefur séð til þess að þau hafa náð að halda í við hækkað verðlag og vexti, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir síðasta ár."

    Bara spurning um hvort maður er neikvæður eða jákvæður í hugsun.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er þá ágætt að einhverjir skuli vera ánægðir með sitt í dag
    0
  • AÞ
    Aðalbjörn Þórólfsson skrifaði
    Ég gæti trúað því að ástandið í heimsmálum hafi áhrif á svörin, t.d. stefnir ekki í úrlausn mála í Íran á næstunni og sumir telja að "olíukreppa" sé handan við hornið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár