Hannes Smárason stýrir 500 manna stórfyrirtæki

Genatækni­fyr­ir­tækið WuXi NextCode, sem Hannes Smárason stýrir, hefur nærri tífaldað starfs­manna­fjölda sinn á þremur árum og fengið inn meira en 20 millj­arða í nýtt hlutafé.

Hannes Smárason stýrir 500 manna stórfyrirtæki
Hröð stækkun Fyr­ir­tæki Hannesar Smára­sonar hefur stækkað úr 60 starfs­mönnum í 500 á þremur árum auk þess sem 24 millj­arðar hafa komið inn í formi nýs hluta­fjár.

Banda­ríska genatækni­fyr­ir­tækið WuXi NextCode, sem Hannes Smárason fjár­festir stýrir, er nærri búið að tífalda starfs­manna­fjölda sinn á síð­ustu þremur árum. Hannes er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, sem var með 60 starfs­menn fyrir þremur árum síðan en er nú komið upp í 500. Hannes var í við­tali um fyr­ir­tækið við líf­tækni­frétta­síð­una Fierce Biotech þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem hann rekur störf þess. 

24 milljarðar í nýtt hlutafé

Hannes, sem á sínum tíma var aðstoð­ar­for­stjóri líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar erfða­grein­ingar (deCode), átti stóran þátt í því þegar fyr­ir­tækið var skráð á markað í Banda­ríkj­unum um síð­ustu alda­mót. Hann hefur því bak­grunn í líf­tækni­geir­anum, líkt og rakið er í við­tal­inu í Fierce Biotech, en eftir að hann hætti hjá deCode varð hann meðal ann­ars for­stjóri FL Group sem fór mik­inn í fyr­ir­tækja­kaupum á Íslandi og erlendis á árunum fyrir íslenska efna­hags­hrunið. Hannes var lát­inn hætta sem for­stjóri FL Group síðla árs 2007 eftir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár