Píratar taka stökk í fylgi

Minna en helm­ingur lands­manna styður rík­is­stjórn­ar­flokk­ana, en sjálf rík­is­stjórnin hefur veru­lega stuðn­ing.

Píratar taka stökk í fylgi
Vinsæl rík­is­stjórn Tveir þriðju hlutar lands­manna styðja rík­is­stjórn­ina, en innan við helm­ingur þá flokka sem eiga aðild að henni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný skoð­ana­könnun leiðir í ljós að fylgi Pírata tekur mikið stökk, en Flokkur fólks­ins tapar miklu fylgi.

Þá mæl­ast rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír með minna en helm­ings­fylgi, eða 48 pró­sent. Þrátt fyrir það nýtur rík­is­stjórnin sem slík stuðn­ings 66,7 pró­senta svar­enda sem er mesti stuðn­ingur við rík­is­stjórn frá hruni. Það er þó tölu­vert minni stuðn­ingur en mæld­ist í könnun Stöðvar 2 fyrr í des­em­ber, þegar 78 pró­sent svar­enda kváð­ust styðja rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur.

Í nýbirtri  könnun MMR mæl­ast Píratar með 14,1% fylgi, en þeir fengu 9,2 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum í lok októ­ber. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur stöðu sinni sem stærsti flokk­ur­inn, en með tveimur pró­sentu­stigum minna fylgi en í kosn­ing­unum, eða 23,2 pró­sent. Vinstri grænir falla naum­lega niður fyrir Sam­fylk­ing­una úr stöðu næst stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins með 16,7 pró­senta fylgi, þótt mun­ur­inn sé ekki mark­tækur.

MMR gerði könn­un­ina á tíma­bil­inu 12. til 15. des­em­ber. 

Fylgi stjórnmálaflokka

Sjálf­stæð­is­flokkur 23,2%

Sam­fylk­ingin 16,8%

Vinstri grænir 16,7%

Píratar 14,1%

Mið­flokk­ur­inn 8,7%

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 8,5%

Viðreisn 5,7%

Flokkur fólks­ins 3,7%

Annað 2,5%

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár