Lét æskudrauminn rætast og hjálpar þúsund manns að eiga góð jól

Anna Péturs­dóttir hefur kynnst áskorunum lífsins. Hún fékk heila­blæðingu í ræktinni rúmlega fertug sem hafði mikil áhrif á hana. Nú er hún í formennsku fyrir stjórn Mæðrastyrks­nefndar Reykja­víkur sem aðstoðar rúmlega þúsund manns fyrir jólin.

Dreymdi um að hjálpa
Dreymdi um að hjálpa Eftir allt saman átti Anna Pét­urs­dóttir eftir að vinna fyrir mæðra­styrks­nefnd þegar hún varð full­orðin, eins og hana dreymdi um í barn­æsku. Mynd: Heiða Helgadóttir

Anna Péturs­dóttir var lítill krakki þegar hún heyrði talað um Mæðrastyrks­nefnd Reykja­víkur í fyrsta skipti.

„Ég man að ég stóð fyrir framan Rafha-eldavél og var að hlusta á útvarpið með mömmu sem var að búa til matinn. Þá kom frétt um mæðrastyrks­nefnd og ég sagði við mömmu að þetta ætlaði ég að gera þegar ég yrði stór.“

Þetta átti eftir að rætast. En ekki fyrr en eftir að hún hafði þurft að ganga í gegnum mikla erfið­leika á lífs­leiðinni.

Anna bjó í Þýska­landi í sex ár og í Banda­ríkjunum í sjö ár og fluttu hún og fjöl­skylda hennar aftur til Íslands haustið 1996 eftir nám og störf ytra. „Ég þrímjaðmagrindar­brotnaði stuttu eftir að ég flutti heim en ég varð undir hesti.“

Fékk heilablæðingu í ræktinni

Ári eftir slysið fékk Anna heila­blæðingu. „Ég var í líkams­rækt og fékk rosalegan höfuðverk. Ég er dálítið þrjósk og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár