Fimm manna fjölskylda send í ókunnugar aðstæður í Ghana

Theresa Kusi Daban og William Kyer­ema­teng ótt­ast örlög barn­anna sinna verði þau end­ur­send til Ghana, líkt og íslensk stjórn­völd áforma. Börnin hafa aldrei komið til Afríku og for­eldr­arnir hafa ekki komið til heima­lands­ins í hart­nær 15 ár. Lögmaður segir laga­breyt­ingu sem sam­þykkt var á síð­asta degi þings­ins í haust mis­muna börnum á flótta.

Fimm manna fjölskylda send í ókunnugar aðstæður í Ghana
Verða send úr landi William og Theresa ásamt börnum sínum þremur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Theresa Kusi Daban og William Kyer­ema­teng verða á næst­unni send til Ghana ásamt þremur ungum börnum sínum. Þangað hafa þau ekki komið í hart­nær 15 ár og segj­ast ekki eiga neina teng­ingu við landið lengur. Theresa og William hafa dvalið hér á landi í alls 22 mán­uði, eða frá því þau sóttu um alþjóð­lega vernd í febr­úar 2016, og yngsta barn þeirra hjóna fædd­ist hér á landi. Laga­breyt­ingin sem Alþingi sam­þykkti til bráða­birgða á síð­asta degi þings­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum var ekki talin eiga við um fjöl­skyld­una. 

Sem kunn­ugt er var gerð bráða­birgða­breyt­ing á útlend­inga­lögum á síð­asta degi þings­ins í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem gerði nokkrum börnum í leit að alþjóð­legri vernd tíma­bundið kleift að fá dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Eva Dóra Kol­brún­ar­dóttir lög­maður segir að stjórn­völd hafi með breyt­ing­unni mis­munað börnum á flótta. 

Brjóti gegn jafnræðisreglunni

Mál tveggja barna, Mary frá Nígeríu og Hanyie frá Afganistan, höfðu verið tals­vert í umræð­unni fram að laga­breyt­ing­unni, en hún gerði báðum stúlkum kleift að fá umrætt dval­ar­leyfi. Lögin styttu frest stjórn­valda til að vinna úr umsókn barns um hæli. Í málum sem heyra undir Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina var frest­ur­inn styttur úr tólf mán­uðum í níu og í málum þar sem umsókn hefur verið tekin til efn­is­með­ferðar var frest­ur­inn til að veita barni dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða styttur úr 18 mán­uðum í 15 mán­uði. Þessi breyt­ing var hins vegar ekki gerð til fram­búðar og gilti ein­ungis í tvær vikur. Theresa og William rétt misstu því af glugg­anum, en ein­ungis mun­aði einum mán­uði upp á. Þó svo að fjöl­skyldan hafði þá dvalið á land­inu í 19 mán­uði þá er tímara­mm­inn ein­ungis frá því sótt er um hæli þar til fyrsti úrskurður kæru­nefndar útlend­inga­mála er birtur í til­fellum þar sem mál eru tekin til efn­is­með­ferðar, en alls liðu 14 mán­uðir í til­viki fjöl­skyld­unnar. Í málum sem heyra undir Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina er hins vegar talið frá því við­kom­andi sótti um hæli þar til brott­flutn­ingur er fram­kvæmdur. Ef tímara­mm­inn væri sá sami í efn­is­með­ferð­ar­málum og Dyfl­inn­ar­málum hefði fjöl­skyldan þannig fallið undir hina tíma­bundnu laga­breyt­ingu.

„Við búum í rétt­ar­ríki þar sem allir skuli vera jafnir fyrir lögum og rétti.“

Eva Dóra er mjög gagn­rýnin á laga­breyt­ing­una. Hún mis­muni barna­fjöl­skyldum sem séu staddar hér á landi í leit að alþjóð­legri vernd og sé brot á jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­laga. „Með hvaða mál­efna­legu rökum er hægt að rök­styðja að ein­göngu hafi verið ætlun lög­gjafans að veita mjög tak­mörk­uðum hópi barna sem eru í sömu stöðu hér á landi alþjóð­lega vernd?“ spyr Eva Dóra í sam­tali við Stundina.

„Ef sú er nið­ur­staðan má óhjá­kvæmi­lega varpa upp þeirri spurn­ingu hvort vilji lög­gjafans með umræddum breyt­ingum á útlend­inga­lögum hafi ein­göngu lotið að því að tryggja með öruggum hætti alþjóð­lega vernd barna sem hæst hefur verið farið með í fjöl­miðlum og þau ásamt fjöl­skyldum sínum því hlotið fram­göngu sinna mála í póli­tísku hagn­að­ar­skyni fyrir þá alþing­is­menn sem beittu sér fyrir umræddri laga­breyt­ingu. Við búum í rétt­ar­ríki þar sem allir skuli vera jafnir fyrir lögum og rétti og það þýðir að beita skuli sömu reglum og lögum yfir þá aðila sem eru í sam­bæri­legri stöðu.“

Hafa myndað sterk tengsl við ÍslandBörnin tala íslensku og líta á Ísland sem sitt heima­land. Yngri dreng­ur­inn, fremstur á mynd­inni, fædd­ist hér á landi.

Bjuggu á Ítalíu frá barnsaldri

Fjöl­skyldan kom hingað til lands frá Ítalíu, en bæði Theresa og William höfðu dvalið þar í landi frá barns­aldri. Ekki er hins vegar hægt að end­ur­senda þau til Ítalíu þar sem dval­ar­leyfi þeirra rann út ári eftir að þau yfir­gáfu landið. Þau verða því send til Ghana, en Theresa og William hafa ekki komið til Ghana í hart­nær 15 ár og segj­ast ekki hafa nein tengsl við landið lengur. For­eldrar þeirra og ætt­ingjar hafi allir flutt sig um set til Evrópu vegna fátæktar og örbirgðar í land­inu og því geti þau ekki sótt þangað stuðn­ing eða húsa­skjól. 

 „Lífið var mjög erfitt í Ítalíu.“

Theresa seg­ist hafa flúið Ghana vegna sárrar fátæktar ein­ungis sextán ára gömul. Hún segir að sér hafi verið lofað skóla­plássi á Ítalíu, en þess í stað verið neydd til að þrífa hús og stunda vændi. Launin hafi verið tekin af henni til þess að greiða skuld vegna ferða­lags­ins til Ítalíu. Þess ber að geta að hvergi er minnst á man­sal eða nauð­ung í gögnum Theresu, en hún útskýrir það með þeim hætti að hún hafi talið að um einka­mál hennar væri að ræða.

Theresa og William kynnt­ust á Ítalíu og eign­uð­ust tvö eldri börnin þar. „Lífið var mjög erfitt í Ítalíu,“ segir William. „Hver dagur var bar­átta, því ég fékk hvergi vinnu og átti erfitt með að fram­fleyta fjöl­skyld­unni. Stundum neydd­ist ég til að stela mat fyrir börnin, en ég vildi ekki gera það. Á end­anum sagði ég við Theresu að lífið ætti ekki að þurfa að vera svona erfitt, við þyrftum ekki að vera á Ítalíu heldur gætum við gefið börn­unum gott líf í öðru landi. Þá ákváðum við að koma til Íslands.“

Þess má geta að William hefur haft atvinnu hér á landi í næstum því tvö ár, en hann starfar hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki í Keflavík. 

Óttast að börnin fái ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu

Börnin eru á aldr­inum eins til sex ára. Elst er Stefania, sem gengið hefur í grunn­skóla í Njarðvík, Nathaniel er þriggja ára og yngsti sonur þeirra er rúm­lega eins árs. Börnin hafa aldrei komið til Ghana, enda voru for­eldrar þeirra báðir á barns­aldri þegar þeir flúðu landið. Verði börn­unum gert að snúa til baka með for­eldrum sínum verða aðstæður þeirra þeim algjör­lega ókunn­ugar. Börnin hafa myndað sterk tengsl við Ísland, tala íslensku og líta á Ísland sem sitt heima­land.

Þá hafa tvö eldri börnin, Stefania og Nathaniel, verið greind með ast­hma og hafa þurft á lækn­is­að­stoð hér á landi vegna önd­unarörð­ug­leika þeirra. Theresa og William ótt­ast að þau muni ekki fá við­eig­andi lækn­is­að­stoð í Ghana. 

„Við getum ekki séð fyrir börn­unum í Ghana,“ segir Theresa. „Ég fór ekki í skóla og er ekki með neitt próf­skír­teini sem ég get notað til að leita að vinnu. Ég er úrkula vonar, stressuð og veit ekki hvað ég á að gera. Þess vegna vil ég að almenn­ingur heyri okkar sögu sem og Alþingi, sem hefur áður hjálpað fjöl­skyldum í svip­aðri stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár