Mynd: Heiða Helgadóttir

Ósýnilegu börnin

Börn sem leita hælis á Íslandi segja frá því að yfir­völd tali ekki við þau og að ekki sé spurt hvernig þeim líði. Samkvæmt Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna eiga börn rétt á að tjá sig áður en afdrifa­ríkar ákvarð­anir eru teknar um líf þeirra. Börnin hafa enga aðkomu að málum er varða líf þeirra og fram­tíð.

„Það hefur eng­inn spurt mig hvernig mér líður,“ segir barn sem kom til Íslands í leit að alþjóð­legri vernd.

Í lögum um útlend­inga segir meðal ann­ars að útlend­ingi, sem fæddur er hér á landi, sé óheim­ilt að vísa frá eða úr landi hafi hann frá fæð­ingu átt hér óslitið fasta búsetu sam­kvæmt þjóð­skrá. Þetta ákvæði virð­ist hins vegar ekki eiga við um börn hæl­is­leit­enda, ef marka má ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar um að senda hinn tæp­lega tveggja ára gamla Felix, Hanif, sem einnig er tveggja ára, og hina sex mán­aða gömlu Jónínu úr landi. Öll fædd­ust þau hér á landi og eru með íslenskar kenni­tölur.  

Útlend­inga­stofnun lítur hins vegar svo á að þegar ákvarð­anir eru teknar í mál­efnum for­eldra, þá sé í raun ekki verið að vísa börn­unum úr landi. Börnin eru þannig ekki aðilar í málum sem varða líf þeirra og fram­tíð. „Við horfum á stöðu for­eldr­anna og börnin fylgja for­eldr­unum í gegnum máls­með­ferð­ina, ef þau eru ekki fylgd­ar­laus ung­menni,“ segir Þor­steinn Gunn­ars­son, sviðs­stjóri lög­fræðis­viðs Útlend­inga­stofn­unar og stað­geng­ill for­stjóra, í sam­tali við Stundina. „Ef for­eldr­unum er gert að snúa heim þá er litið svo á að börnin fylgi for­eldr­unum, nema staðan sé þannig að bestu hags­munir barns­ins mæli gegn því að því sé vísað úr landi. Eins og þetta ákvæði hefur verið skilið bæði í þróun og fram­kvæmd hjá okkur, inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og kæru­nefnd útlend­inga­mála, þá kemur það ekki í veg fyrir að þú fáir synjun á hæli og þurfir að fara heim.“

Ákvæðið kom inn í lög um útlend­inga árið 2014 og því hefur enn ekki reynt á það fyrir dóm­stólum. Það mun hins vegar bráðum gera það í til­fellum Felix, Hanif og Jónínu, en lög­menn fjöl­skyldn­anna segj­ast ætla að láta á það reyna hvort ákvarð­an­irnar um að vísa þeim úr landi haldi fyrir dómi.  

Hagsmunir barna ekki í forgangi

Umboðs­maður barna hefur meðal ann­ars gagn­rýnt aðstæður barna sem koma hingað til lands í leit að alþjóð­legri vernd og sagt máls­með­ferð­ina brjóta í bága við Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Samkvæmt honum eiga börn meðal ann­ars alltaf að eiga rétt á að tjá sig áður en teknar eru ákvarð­anir sem varða þau, en í fæstum málum fá börn tæki­færi til þess 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár