Sjálfstæðismenn lofuðu að lækka fjármagnstekjuskatt en ætla að hækka hann

Hófleg hækkun fjár­magnstekju­skatts á skjön við kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sjálfstæðismenn lofuðu að lækka fjármagnstekjuskatt en ætla að hækka hann

Ný rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna ætlar að hækka fjár­magnstekju­skatt úr 20 pró­sentum upp í 22 pró­sent sam­kvæmt mál­efna­samn­ingnum sem lagður verður fyrir flokks­stofn­anir í dag.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var tals­vert rætt um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna í stjón­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum og deilt um hvort skyn­sam­legt væri að hækka skat­inn eða bæta við sér­stöku skatt­þrepi á háar fjár­magnstekjur. 

Kjarninn greindi frá því í gær að  lend­ingin hefði verið að hækka fjár­magnstekju­skatt og afla þannig rík­is­sjóði við­bót­ar­tekna upp á 2,5 millj­arða á ári. Þetta krefst aðeins hóf­legrar hækk­unar skatts­ins, eða sem nemur tveimur pró­sentu­stigum. 

Hækkunin gengur í ber­högg við lof­orð sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gaf kjós­endum sínum fyrir kosn­ingar.

„Við ætlum að lækka fjár­magnstekju­skatt,“ segir orð­rétt í umfjöllun um skatta­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins á vef flokks­ins auk þess sem þetta var sér­stak­lega til­greint sem eitt af áherslu­málum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í umfjöllun Mbl.is um skatta­stefnu flokka nokkrum dögum fyrir kosn­ingar.

Á meðal ann­arra atriða sem fram koma í stjórn­ar­sátt­mála er álagn­ing komu­gjalda. Samkvæmt svari frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, um komu­gjöld fyrr á árinu gætu komu­gjöld skilað 3 til 4 millj­arða tekjum í rík­is­sjóð á ári. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár