„Þetta er gert fyrir mig líka“

Guðrún Kristín Þórs­dóttir á eig­in­mann sem er með Alzheimer og er hún sjálf­boða­liði í sam­veru aðstand­enda Alzheimer-sjúk­linga sem hitt­ast einu sinni í mán­uði. „Mark­miðið með sam­ver­unni er að hitt­ast og deila svip­aðri reynslu.“

„Þetta er gert fyrir mig líka“
Guðrún Kristín Þórs­dóttir „Mér finnst ynd­is­legt að geta stutt fólk og mér finnst félagið vera að gera frá­bæra hluti og vera á réttri leið.“ Mynd: Úr einkasafni

Guðrún Kristín Þórs­dóttir er sjúkra­liði, með BA-próf í sál­ar­fræði og hug­rænni atferl­is­með­ferð og er hún jafn­framt djákni og leið­sögu­maður.

„Ég hef yfir 30 ára reynslu af því að leiða sjálfs­hjálp­ar­hópa og líka að halda nám­skeið um líðan og til­finn­ingar og hvernig sé hægt að takast á við lífið á jákvæðan hátt þó svo að aðstæður séu erf­iðar og kannski hörmu­legar í sumum til­vikum.“

Eig­in­maður Guðrúnar Krist­ínar greind­ist með Alzheimer fyrir nokkuð mörgum árum. Guðrún og Kristný Rós Gúst­afs­dóttir, sem einnig er djákni, komu á kynn­ing­ar­fundi í Áskirkju haustið 2013 fyrir aðstand­endur minn­is­sjúkra. Rúmlega 50 manns mættu á fund­inn og var ákveðið að mynda stuðn­ings­hópa sem myndu hitt­ast viku­lega í kirkj­unni að kvöldi til. 

„Starfs­menn Áskirkju voru svo vin­sam­legir að lána okkur safn­að­ar­sal­inn á neðri hæð­inni. Aftur á móti urðum við hús­næð­is­laus haustið 2015 og því var leitað til Alzheimer-sam­tak­anna um aðstöðu. Það varð að sam­komu­lagi að við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár