Hafa gefið um milljarð króna á fimmtán árum

Sonja Egils­dóttir hefur verið for­maður Kven­fé­lags­ins Hrings­ins frá 2014 en félags­kona frá 2008. Félags­konur vinna allt árið að því að safna fé í Barna­spít­ala­sjóð Hrings­ins og fastir liðir í starf­sem­inni eru til dæmis hinn árlegi jóla­basar, jóla­korta­sala, jóla­kaffi og jóla­happ­drætti.

Hafa gefið um milljarð króna á fimmtán árum
Sonja Egils­dóttir „Hring­ur­inn er í mjög góðu sam­bandi við starfs­fólk Barna­spít­al­ans. Stjórn félags­ins er reglu­lega boðið í heim­sókn til að fylgj­ast með stöð­unni og því sem er framundan, til dæmis hvað varðar tækja­kaup. Það eflir mann vissu­lega í starf­inu og hvetur til dáða að gera enn betur.” Mynd: Heiða Helgadóttir

Sonja Egils­dóttir og nokkrar vin­konur hennar gengu í Kven­fé­lagið Hringinn eftir að barna­barn einnar úr hópnum lést úr krabba­meini á Barna­spít­ala Hrings­ins. „Það kvikn­aði í okkur sú ósk að hjálpa og láta gott af okkur leiða,“ segir hún.  

Hring­ur­inn er vinnu­fé­lag og félags­konur vinna allt árið að verk­efnum af ýmsu tagi, meðal ann­ars handa­vinnu. Sonja var fyrstu árin í handa­vinnu fyrir jóla­basar­inn en var síðan beðin um að vera for­maður jóla­korta­nefndar. „Ég sá um þá nefnd í þrjú ár. Margar konur eru í því að pakka jóla­kortum og koma þeim í sölu í versl­anir og auð­vitað selja kortin.” 

Hrings­konur leita yfir­leitt til lista­manns sem gefur vinnu sína en félags­konur hafa líka hannað jóla­kortin. Í ár skartar jóla­kort Hrings­ins fal­legri mynd af grænum jólakransi á rauðum grunni eftir lista­mann­inn Sigga Egg­erts­son. Jóla­kortin eru seld átta í pakka á 1.500 krónur auk þess sem hægt er að kaupa jóla­merki­spjöld. Jóla­kortin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár