Fylgi Vinstri grænna fellur og stuðningsfólk vill síst Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn

Ný könnun sýnir að 40 pró­sent þeirra sem kusu VG í alþing­is­kosn­ing­unum ætla ekki að gera það aftur. Meiri­hluti þeirra sem þó styðja VG vilja síst að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé í rík­is­stjórn. Katrín Jak­obs­dóttir leiðir hins vegar við­ræður um að mynda rík­is­stjórn með flokknum.

Fylgi Vinstri grænna fellur og stuðningsfólk vill síst Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn
Katrín Jak­obs­dóttir Leiðir stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Mynd: Morgunblaðið / Eggert Jóhannesson

40 pró­sent þeirra sem kusu Vinstri græn í alþing­is­kosn­ing­unum í lok októ­ber segj­ast ekki myndu gera það aftur ef kosið væri nú. Þetta kemur fram í nýrri skoð­ana­könnun MMR, sem sýnir að fylgi VG hefur fallið um 4 pró­sent ef miðað er við kosn­ing­arnar.

Vinstri græn fengu 16,9 pró­sent stuðn­ing í yfir­stöðnum alþing­is­kosn­ingum, en ein­ungis 13 pró­sent segj­ast myndu kjósa flokk­inn í dag. Á móti segj­ast 16 pró­sent nú ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una, en flokk­ur­inn fékk aðeins 12,1 pró­sent stuðn­ing í kosn­ing­unum.

Hátt í hund­rað með­lima VG hafa sagt sig úr flokknum eftir að þing­flokkur VG, með stuðn­ingi níu af ell­efu þing­mönnum flokks­ins, hóf stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Á móti hafa 20 til 25 skráð sig í flokk­inn. Alls eru með­limir í flokknum tæp sex þús­und.

Í könnun MMR kemur fram að 57 pró­sent kjós­enda VG vilja síst að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé í rík­is­stjórn. Píratar eru hins vegar óvin­sæl­astir hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en 63 pró­sent þeirra vilja síst að Píratar séu í stjórn. 40 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar vilja síst af öllu Sjálf­stæð­is­flokk­inn í stjórn og 68 pró­sent Pírata. Því er ljóst að erki­fj­endur íslenskra stjórn­mála eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar. 

Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar, VG, Pírata og Við­reisnar eru að öðru leyti mest and­vígir því að Mið­flokk­ur­inn sé í rík­is­stjórn, en 46 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins vilja síst af öllu Pírata í stjórn.

Fylgi VG hefur hrunið á einum og hálfum mán­uði. Þannig mæld­ist VG stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn í könnun 365 sem birt var 11. októ­ber, með 29,9 pró­sent fylgi.

Hlé er nú á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urm Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks á meðan mið­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins fundar í dag og á morgun.

Hverja vilja stuðnigs­menn síst?Aðeins 6 pró­sent stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill síst VG í rík­is­stjórn, en 57 pró­sent þeirra sem styðja VG vilja síst Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Fylgi flokka í dag samanborið við kosningar:

24,4% Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn - 25,3% í kosn­ingum

16% Sam­fylk­ingin - 12,1% í kosn­ingum

13% Vinstri græn - 16,9% í kosn­ingum

10,5% Mið­flokk­ur­inn - 10,9% í kosn­ingum

9,9% Píratar - 9,2% í kosn­ingum

9,5% Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn - 10,7% í kosn­ingum

8,4% Flokkur fólks­ins - 6,9% í kosn­ingum

6,5% Viðreisn - 6,7% í kosn­ingum

1,8% Annað - 1,5% í kosn­ingum 

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innarFylgi við flesta flokka er svipað og í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, en Vinstri grænir falla mikið og fylgi bæt­ist við Sam­fylk­ing­una.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár