Tapaði meiðyrðamáli og gert að greiða 800 þúsund krónur

Haukur S. Magn­ús­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Grapevine, stefndi blaða­manni Stund­ar­innar vegna fréttar þar sem til­efni brott­hvarfs hans úr rit­stjóra­stóli var áréttað.

Tapaði meiðyrðamáli og gert að greiða 800 þúsund krónur
Haukur Magn­ús­son Rit­stjóri Grapevine sagði í síð­asta leið­ara að honum hefði „loks­ins tek­ist að segja upp“. Sann­leik­ur­inn var sá að honum hafði verið gert að láta af störfum eftir að þrír kven­kyns lær­lingar kvört­uðu undan honum. Í kjöl­far fréttar þess efnis krafð­ist Haukur tveggja millj­óna króna frá blaða­manni Stund­ar­innar. Mynd:

Haukur S. Magn­ús­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Reykja­vik Grapevine, þarf að greiða 800 þús­und krónur í máls­kostnað, eftir að hann tap­aði meið­yrða­máli gegn blaða­manni Stund­ar­innar. Dómur í máli Hauks gegn Áslaugu Karen Jóhanns­dóttur blaða­manni féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. 

Forsaga máls­ins er sú að Haukur skrif­aði leið­ara í Reykja­vík Grapevine, þar sem hann gaf til kynna að hann léti af starfi rit­stjóra að eigin frum­kvæði. Sann­leik­ur­inn var hins vegar sá að Hauki hafði verið gert að hætta eftir að þrír lær­lingar, sem störf­uðu undir Hauki, sendu bréf á útgáfu­fé­lagið og kvört­uðu undan áreitni af hans hálfu.

Stundin birti frétt þess efnis í febr­úar 2016 og brást Haukur við með því að senda kröfu á blaða­mann Stund­ar­innar, í gegnum lög­mann sinn, Vilhjálm H. Vil­hjálms­son, þar sem farið var fram á að Áslaug Karen greiddi honum tvær millj­ónir króna. Tæpu ári síðar barst stefna á grund­velli þess að umfjöll­unin væri ólög­mæt og flokk­að­ist undir brot gegn hegn­ing­ar­lögum.

Dómari í mál­inu komst að þeirri nið­ur­stöðu að fylgt hafi verið eðli­legu verk­lagi í frétta­mennsku við vinnslu frétt­ar­innar.

Áslaug Karen var sýknuð af kröfum Hauks og var Hauki gert að greiða 800 þús­und krónur í máls­kostnað.

„Ekki liggur annað fyrir en að stefnda hafi fylgt eðli­legu verk­lagi í frétta­mennsku við vinnslu frétt­ar­innar. Hún ræddi við tvo heim­ild­ar­menn og hafði undir höndum tvö af þeim þremur bréfum sem bár­ust útgáfu Reykja­vík Grapevine. Þá segir í frétt­inni að stefnda hafi séð önnur sam­skipti kon­unnar við stefn­anda og að hún hafi fengið stað­fest­ingu frá Stíga­mótum um að hún hafi leitað þangað. Að lokum leit­aði hún upp­lýs­inga frá útgáfu­fyr­ir­tæki Reykja­vík Grapevine um hvort bréfin hefðu borist og valdið því að stefn­andi hafi látið af starfi rit­stjóra. Þegar litið er til fram­an­greindra atriða og þau metin heild­stætt, einkum að teknu til­liti til þess erindis sem fréttin átti til almenn­ings, fram­setn­ingar hennar og aðdrag­anda, auk vinnu­bragða stefndu við gerð frétt­ar­innar, telur dóm­ur­inn að með hinum umstefndu ummælum hafi stefnda ekki farið út fyrir mörk leyfi­legrar tján­ingar í fjöl­miðlum sam­kvæmt 73. grein stjórn­ar­skrár­innar. Því ber að hafna öllum kröfum stefnda,“ segir í dóms­úr­skurð­inum.

Í dómnum segir einnig að ummælin, sem stefnt var fyrir, hafi komið fram í umfjöllun þar sem því var haldið fram að yfir­maður hafi þurft að víkja úr starfi eftir að þrír und­ir­menn hans höfðu sakað hann um kyn­ferð­is­lega áreitni. „Sú umfjöllun teng­ist almennri þjóð­fé­lags­um­ræðu, sem hefur verið áber­andi síð­ustu ár, um þá erf­ið­leika sem þolendur kyn­ferð­is­of­beldis geta af ýmsum ástæðum átt með að stíga fram og til­kynna brotið. Umfjöll­unin, þar á meðal lýs­ing á efni þeirra ásak­ana sem und­ir­menn­irnir báru á stefn­anda, var því liður í þjóð­fé­lags­legri umræðu og átti erindi til almenn­ings.“

Fyr­ir­vari vegna hags­muna: Í frétt­inni fjallar Stundin um sér tengdan aðila, blaða­mann Stund­ar­innar, og dóms­mál sem varðar Stundina beint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár