Samneyslan ekki minni frá 2001

Ef ekki verður stefnu­breyt­ing í rík­is­fjár­málum mun hlut­fall sam­neysl­unnar af lands­fram­leiðslu standa í stað næstu ár og nema að jafn­aði um 22,7 pró­sentum á tíma­bil­inu 2019 til 2023.

Samneyslan ekki minni frá 2001
Fjár­mála­ráð­herrar Fjár­mála­ráð­herrar und­an­far­inna ára, Bjarni Bene­dikts­son og Benedikt Jóhann­es­son. Mynd: Pressphotos

Hlutfall sam­neyslu af vergri lands­fram­leiðslu er 22,8 pró­sent í ár og hefur ekki verið lægra frá árinu 2001. Þetta kemur fram í Þjóð­hags­spá Hag­stof­unnar sem birt­ist á föstu­dag, en sam­neysla árs­ins 2016 var end­ur­skoðuð við útgáfu þjóð­hags­reikn­inga í sept­em­ber. Ef ekki verður stefnu­breyt­ing í rík­is­fjár­málum mun hlut­fall sam­neysl­unnar af lands­fram­leiðslu standa í stað næstu ár og nema að jafn­aði um 22,7 pró­sentum á tíma­bil­inu 2019 til 2023. Þetta er mat Hag­stof­unnar, byggt á þeim útgjald­ara­mma sem birt­ist í rík­is­fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar.

Í hag­spá ASÍ fyrir tíma­bilið 2017 til 2019 er því spáð að hlut­deild sam­neysl­unnar í vergri lands­fram­leiðslu lækki úr 22,8 pró­sentum niður í 22,7 pró­sent á yfir­stand­andi ári og í 22,6 pró­sent árið 2018. „Þetta er mikil breyt­ing frá árunum 2010–2015 en þá var hlut­fallið 24,3% að með­al­tali. Ef litið er allt aftur til 1996 er hlut­fall sam­neysl­unnar af VLF 23,3% að með­al­tali,“ segir í hag­spánni sem kom út í lok októ­ber. Tölurnar eru ögn hærri í spá Hag­stof­unnar sem telur þó að með­al­tals­hlut­fallið næstu ára verði vel undir 23 pró­sentum.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár