Víðir bóndi í stríði gegn laxeldinu: „Hrafninn eyðilagði hér 80 rúllur“

Víðir Hólm Guð­bjarts­son, bóndi í Grænu­hlíð í Arn­ar­firði, hefur staðið í ára­löngu stappi við eld­is­fyr­ir­tækið Arnarlax. Bóndinn á í mála­ferlum við Arnarlax í félagi við aðra. Hefur áhyggjur af umhverf­is­á­hrifum lax­eld­is­ins. Arnarlax vill ekki tjá sig um gagn­rýni Víðis á fyr­ir­tækið og segir hana „til­hæfu­lausa“.

Víðir bóndi í stríði gegn laxeldinu:  „Hrafninn eyðilagði hér 80 rúllur“
Hrafnagerið á heyrúll­unum Víðir Hólm Guð­bjarts­son segir að hrafnar sæki svo í laxa­fóðrið sem Arnarlax sé kæru­laust um og að fugl­arnir setj­ist um heyrúll­urnar hans og skemmi þær.

„Það er voða­lega lít­ill vin­skapur okkar á milli. Ég fæ hroll bara af því að hugsa um þá,“ segir Víðir Hólm Guð­bjarts­son, bóndi á Grænu­hlíð í sveit­ar­fé­lag­inu Bíldudal, þegar hann ræðir um sam­skipti sín og eld­is­lax­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal. Víðir Hólm hefur staðið í ströngu gagn­vart fyr­ir­tæk­inu og gagn­rýnt umhverf­is­á­hrif lax­eldis fyr­ir­tæk­is­ins á búskap hans og lífs­skil­yrði á svæð­inu. 

Víðir Hólm er einn af þeim ein­stak­lingum sem hefur stefnt Arn­ar­laxi og fleiri aðilum út af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Arn­ar­firði og umhverf­is­á­hrifa lax­eld­is­ins. Mál­sókn­ar­fé­lag var stofnað til þess arna sem í eru fjöl­margir aðilar, ein­stak­lingar og veiði­rétt­ar­hafar í ýmsum fisk­veiðiám. Stefna mál­sókn­ar­fé­lags­ins gegn Arn­ar­laxi var þing­fest í byrjun þessa árs. Lögmaður hóps­ins er Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­lög­maður og lax­veiði­maður. Þannig að ljóst er að bónd­inn hugsar Arn­ar­laxi þegj­andi þörf­ina. 

Hrafninn eyðilagði heyrúllurnar

Víðir segir að bar­átta sín hafi litlu skilað. „Ég er búinn að deila á þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár