Fær flogaköst vegna kulda

Arna Magn­ús­dóttir er 75% öryrki vegna kulda­tengdrar floga­veiki. Arna hefur stundum gengið um 20 km á dag til að halda lík­am­anum heitum og hún stefnir á að ganga hring­inn í kringum landið. Hún stefnir á að flytja úr landi.

Sækir lyfin til Noregs
Sækir lyfin til Noregs Arna Magn­ús­dóttir þarf að fara til Noregs til að sækja lyf á þriggja mán­aða fresti og hittir norskan lækni árlega. Mynd: Heiða Helgadóttir

Úti er tæp­lega 10 stiga hiti. Arna Magn­ús­dóttir situr á kaffi­húsi í svartri, þykkri úlpu. Hún ber hálskeðju með skildi þar sem fram kemur að hún sé floga­veik og með ofnæmi fyrir vissum lyfjum.

Arna er 75% öryrki vegna kulda­tengdrar floga­veiki.

Of kalt á Íslandi

Arna segir að sjúk­dóm­ur­inn stafi af því að heila­frum­urnar og -bylgj­urnar vinna öðru­vísi þegar hún er í kulda. „Köstin byrja á fullu þegar fer að kólna en ég er góð í hita. Ég get ekki farið í sund og þarf að tak­marka allt sem ég geri. Það er ein­fald­lega of kalt að vera á Íslandi.“

Hún segir að hún liggi fyrir eftir köstin. „Ég gleymi íslensk­unni eftir stærstu köstin og man ekk­ert í hvaða landi ég er og man ekk­ert hvað ég var að gera. Ég næ stundum ekki áttum fyrr en tveimur sól­ar­hringum síðar.“

„Ég gleymi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár