Íhaldsstjórn í kortunum?

Sigurður Ingi Jóhanns­son er í lyk­il­stöðu og seg­ist vilja hægri­flokk í rík­is­stjórn. Inga Sæland vill að Sig­mundur Davíð eða Bjarni Bene­dikts­son fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð.

Íhaldsstjórn í kortunum?
Maðurinn með lyk­il­inn Svo virð­ist sem lyk­ill­inn að nýrri rík­is­stjórn Íslands sé í hönd­unum á Sigurði Inga Jóhanns­syni. Mynd: Pressphotos

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er í lyk­il­stöðu í þeim stjórn­ar­mynd­un­ar­þreif­ingum sem nú eru farnar af stað. Fjöl­flokka félags­hyggju­stjórn verður seint mynduð án Fram­sókn­ar­flokks­ins, en um leið er ólík­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti tryggt sér áfram­hald­andi stjórn­ar­setu nema í sam­starfi við Fram­sókn­ar­flokk­inn. 

Hlýtt er á milli nýrra þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins eins og birt­ist í sam­floti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Ingu Sæland á Bessa­staði í dag. Sig­mundur Davíð stað­festi svo áðan í við­tali við fjöl­miðla, eftir óvenju­langan fund sinn með for­seta, að hann hefði verið í sam­bandi við Bjarna Bene­dikts­son um hugs­an­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er þá litið sér­stak­lega til sam­starfs við Sigurð Inga Jóhanns­son og Fram­sókn­ar­flokk­inn. Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagði á frétta­manna­fundi rétt í þessu að henni þætti eðli­leg­ast ef Bjarni Bene­dikts­son eða Sig­mundur Davíð fengi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið frá for­seta.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fór af fundi for­seta í dag með þau skila­boð að rétt­ast væri að flokk­arnir sem voru saman í stjórn­ar­and­stöðu und­an­farna átta mán­uði reyndu fyrir sér um myndun rík­is­stjórnar, Vinstri græn, Sam­fylk­ingin, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Píratar. Þá yrði jafn­framt hugað að því að skapa breið­ari sam­stöðu um ýmis mál og mála­flokka með fleiri flokkum á þing­inu. 

Vilja hægri flokk í stjórnina

Sigurður Ingi hefur virst opinn fyrir þessu und­an­farna daga, meðal ann­ars á óform­legum fundi „stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna“ í þing­hús­inu í morgun. Þess vegna kom mörgum á óvart þegar Sigurður Ingi sagði, í við­tali við fjöl­miðla eftir fund sinn með for­seta, að 32 manna þing­meiri­hluti yrði tæpur og álit­legra væri að mynda stjórn með „breið­ari skírskotun frá hægri til vinstri og yfir miðju“.

Stjórn til vinstri með Fram­sókn­ar­flokknum og Pírötum hefði ein­ungis 32 þing­menn, eða eins manns meiri­hluta. „Hann er auð­vitað mjög tæpur og við höfum séð hvernig slík stjórn hefur hoppað fyrir björg á mjög stuttum tíma,“ sagði Sigurður Ingi á Bessa­stöðum.

Ólíklegt verður að telj­ast að með ummæl­unum hafi Sigurður Ingi verið að vísa til þess að flokk­arnir fjórir myndu leita sam­starfs við Viðreisn. Við­mæl­endur Stund­ar­innar úr þremur flokkum á Alþingi segja nær­tæk­ast að túlka orð Sigurðar sem ákall um sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Þá er erfitt að meta hvort Sigurður Ingi líti á Flokk fólks­ins sem vinstri flokk í slíkri stjórn, en svo virð­ist sem óform­legt banda­lag sé komið á milli Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

„Ég er fyrst og fremst að horfa til þess að búa til rík­is­stjórn með breiða skírskotun í báðar áttir. Ég held að það sé það sem þurfi hér í land­inu til að búa til póli­tískan stöð­ug­leika. Það er sá kostur sem ég myndi helst vilja vinna að, en það eru vissu­lega aðrir kostir og við þurfum að skoða þá,“ sagði Sigurður Ingi.

Miðflokksmenn og framsóknarmenn tala saman

Sigurður Ingi og Sig­mundur hafa ekki talað saman um stjórn­ar­myndun, sam­kvæmt yfir­lýs­ingum þeirra beggja. Hins vegar sagði Sig­mundur Davíð, eftir fund sinn með for­seta Íslands, að þing­menn í báðum flokkum hefðu átt sam­töl und­an­farna daga.

Í ljósi þess að flokkar af bæði hægri- og vinstri­væng íslenskra stjórn­mála renna hýru auga til Fram­sókn­ar­flokks­ins er staða Sigurðar Inga sterk. Og með ummælum sínum um breiða skírskotun frá vinstri til hægri minnti hann ræki­lega á það. 

Framhald stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna ræðst þannig að miklu leyti af því hvort Sigurður telur flokknum sínum gagn­ast betur; sam­starf félags­hyggju­flokka eða sam­starf íhalds­samra flokka. Mun Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn jafn­vel eft­ir­láta Sigurði Inga for­sæt­is­ráðu­neytið? Og vill Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn binda trúss sitt við Flokk fólks­ins og Mið­flokk­inn, þrátt fyrir stirð sam­skipti Fram­sókn­ar­manna við Sigmund Davíð?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár