Hallur segir Ísland í skotlínu Soros og guðlausra sósíalista sem vilji „afnám vestrænnar siðmenningar“

Ísland sumsé er í skot­línu afla sem stefna að guð­lausu ríki sós­í­alista, afnámi vest­rænnar sið­menn­ingar, lýð­ræðis, frelsis og jafn­réttis.

Hallur segir Ísland í skotlínu Soros og guðlausra sósíalista sem vilji „afnám vestrænnar siðmenningar“

Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni var velt úr valda­stóli í sið­lausri árás sós­í­alista á Íslandi og Panama­skjölin eru runnin undan rifjum „hins kald­rifj­aða sós­í­alista George Soros“. Þetta full­yrðir Hallur Hallsson, blaða­maður, rit­höf­undur og höf­undur skáld­sög­unnar Váfugl, í pistli sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. 

Segir Hallur að Soros stefni að afnámi þjóð­rík­is­ins fyrir gamlan draum komm­ún­ista um alheims­stjórn. Ísland sé í skot­línu þeirra afla sem vilji grafa undan vest­rænni sið­menn­ingu, lýð­ræði, frelsi og jafn­rétti. 

„Öfl guð­leysis á Íslandi; íslenskir sós­í­alistar í VG og Sam­fylk­ingu ásamt Pírötum, veifa þessu tré. Líkt og alþjóða­hyggja komm­ún­ista freist­aði þess að leggja undir sig heim­inn á 20. öld, þá freista guð­lausir sós­í­alistar 21. aldar þess að feta í sama fót­spor,“ skrifar Hallur. 

Hann segir Bjarna Bene­dikts­son og Sigmund Davíð hafa haldið á mál­stað Íslands gagn­vart erlendum hræ­gömmum sem komu sér fyrir í þrota­búum hinna föllnu íslensku banka. 

„Þeir standa vörð um íslenska lýð­veldið. Sós­í­alistar í VG, Sam­fylk­ingu með stuðn­ingi Pírata hins vegar þjón­uðu hinum útlendu öflum; freist­uðu að hlekkja þjóð sína í Icesave-skuldir og færðu banka­hræ­gömmum í hendur. Þeir stefna að því að færa auð­lindir þjóðar sinnar í útlendar hendur. Þeir settu 110 ára leynd­ar­lög á gjörn­inga sína og saka svo aðra um leynd­ar­hyggju! Lygin ríður aldrei við einteym­ing. Nokkrir veg­villtir sjálf­stæð­is­menn, blind­aðir af hásölum Brussel í von um veg­tyllur og brauð­mola, studdu sið­lausa gjörn­ing­ana.“ 

Telur Hallur að sós­í­alistar geri atlögu gegn íslenska lýð­veld­inu, gegn vest­rænni sið­menn­ingu, lýð­ræði og jafn­rétti. „Fólk þarf að átta sig á þess­ari atlögu úr reyk­fylltum myrkv­uðum bak­her­bergjum. Sós­í­al­ismi sem gerir út á fátækt­ar­vit­und er í eðli sínu – alltaf, alltaf, alltaf – and­lýð­ræð­is­legur.“ skrifar hann. „Ísland er í hættu, Vest­ur­lönd og vest­ræn sið­menn­ing eru í hættu að falla í guð­laust mið­alda­myrkur helsis og fátæktar í kompaníi við Kína og islam þar sem and­staða er mis­kunn­ar­laust barin niður.“

Skáld­saga Halls Halls­sonar, Váfugl, kom út árið 2008 og ger­ist í martrað­ar­kenndum heimi fram­tíðar þar sem Ísland hefur gengið í Evr­ópu­sam­bandið og misst yfir­ráð yfir auð­lindum lands­ins. Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Daniel Hannan hefur full­yrt að bókin sé „besta bók frá Íslandi síðan Sjálf­stætt fólk“ og árið 2012 var haldin sér­stök kynn­ing á bók­inni í Westminster-höll. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fór til Bret­lands og hélt fyr­ir­lestur um gildi bók­ar­innar og stöðu Íslands utan Evr­ópu­sam­bands­ins sem sjá má hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár