Matreiðslunema vísað úr landi vegna nýrra laga

Chuong Le Bui hefur verið nemi á veit­inga­staðnum Nauthól í tvö ár, en Útlend­inga­stofnun ætlar að vísa henni úr landi á grund­velli nýrra útlend­inga­laga. Björn Ingi Björns­son, yfir­mat­reiðslu­maður á Nauthól, segir málið út í hött.

Matreiðslunema vísað úr landi vegna nýrra laga
Chuong Le Bui verður vísað úr landi á grund­velli nýrra útlend­inga­laga sem tóku gildi um síð­ustu ára­mót. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það eina sem ég vil er að fá að búa áfram á Íslandi og fá að halda áfram að læra mat­reiðslu,“ segir Chuong Le Bui, sem hefur verið mat­reiðslu­nemi við veit­inga­stað­inn Nauthól í tvö ár, en henni verður vísað úr landi á grund­velli nýrra útlend­inga­laga sem tóku gildi um síð­ustu ára­mót. Nýju útlend­inga­lögin gera ekki ráð fyrir að þeim sem leggi stund á iðn­nám hér á landi fái dval­ar­leyfi vegna náms, líkt og fyrri lög gerðu. 

Inga Lillý Brynj­ólfs­dóttir, lög­maður Chuong, segir náms­manna­leyfin þannig að sækja þurfi um nýtt dval­ar­leyfi fyrir hvert miss­eri. Það skrítna í mál­inu sé að Chuong hafi fengið útgefið leyfi í febr­úar, eftir að ný lög tóku gildi, en fái synjun núna í októ­ber á grund­velli nýrra laga. Ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar hefur nú verið kærð til kæru­nefndar útlend­inga­mála. 

„Hún er okkar besti nemi, að öðrum ólöst­uðum, og nokkuð ljóst að hér er á ferð­inni efni í frá­bæra mat­reiðslu­konu,“ segir Björn Ingi Björns­son, yfir­mat­reiðslu­maður á Nauthól. Hann seg­ist ekki geta túlkað þessi lög öðru­vísi en að þau geng­is­felli iðn­menntun og að hún sé minna virði en háskóla­gráður. Hann hall­ist hins vegar að því, og seg­ist vona, að um mis­tök við laga­breyt­ingu sé að ræða. „Mistök sem eru samt grafal­var­leg eins og sjá má á þessu máli og geta haft gríð­ar­legar afleið­ingar fyrir fólk sem hefur hafið nám sitt hér með rétt­mætar vænt­ingar um að fá að ljúka því.“

Tvö ár út um gluggann

Chuong er víetnamskur rík­is­borg­ari. Hún er nú hálfnuð með lög­bund­inn náms­samn­ing sinn í mat­reiðslu­námi og er á fyrstu önn í Mennta­skól­anum í Kópavogi. Björn telur að með ákvörðun sinni sé Útlend­inga­stofnun að neyða Chuong til að kasta tveimur árum af ævi sinni út um glugg­ann. „Tveimur árum þar sem hún hefur lagt mjög hart að sér við að ná sínum mark­miðum og upp­fylla sinn draum um að verða mat­reiðslu­kona. Það vita allir sem það hafa reynt að það að læra að vera alvöru mat­reiðslu­maður kostar blóð, svita og tár. Starfs­námið er mjög erfitt og krefj­andi og margir sem hefja það gef­ast upp. Svo ekki sé minnst á að Chuong hefur ekki íslensku sem móð­ur­mál og hefur sótt nám­skeið utan vinnu til að fá betri grunn fyrir bók­lega námið sem fer allt fram á íslensku. Stundar hún námið sitt af alúð sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Mennta­skól­anum í Kópavogi þar sem hún er nú á sinni fyrstu önn. Hún mætir vel og er til fyr­ir­myndar enda afar ein­beitt í sínu námi,“ segir Björn Ingi.

„Hún er okkar efni­leg­asti nemi og á fram­tíð­ina fyrir sér í þessu fagi og því er það glapræði að það skuli vera eyði­lagt með þess­ari brott­vísun.“

Hann segir und­ar­legt að þeim sé gert að rifta lög­bundnum náms­samn­ingi til fjög­urra ára, og um leið missa frá­bæran starfs­kraft sem dýr­mætur tími og vinna hafi farið í að þjálfa, á sama tíma og nán­ast ómögu­legt sé að fá fag­lærða starfs­menn í grein­ina. „Við á Nauthól leggjum mik­inn metnað í að útskrifa topp fag­menn frá okkur sem hafa víð­tæka reynslu og eru til­búnir í öll þau verk sem fag­lærður mat­reiðslu­maður þarf að kunna. Hefur Chuong stað­ist allar okkar kröfur og vænt­ingar um góða starfs­hætti og vinnu­brögð. Hún er okkar efni­leg­asti nemi og á fram­tíð­ina fyrir sér í þessu fagi og því er það glapræði að það skuli vera eyði­lagt með þess­ari brott­vísun og með þessum órétt­láta hætti,“ segir hann.

Björn Ingi segir Chuong vera mik­il­vægan part af lið­inu á Nauthóli og að hún hafi átt þátt í að þróa rétti sem prýða mat­seðil veit­inga­húss­ins sem hafi vakið mikla lukku. „Hún hefur verið okkur inn­blástur þegar hún hefur sýnt okkur mat­reiðslu frá sínu heima­landi sem er okkur fram­andi. Hún er líka vinur okkar og sam­starfs­fé­lagi. Þessi brott­vísun Útlend­inga­stofn­unnar er okkur öllum því mikið áfall og mik­ill skaði fyrir okkur og fyr­ir­tækið í heild sinni að missa hana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár