Segir Flokk fólksins „láta ofbeldismann leiða listann í Norðvesturkjördæmi“

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti borg­ar­stjórnar, spyr hvort Inga Sæland ætli að biðj­ast afsök­unar á odd­vit­anum í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Segir Flokk fólksins „láta ofbeldismann leiða listann í Norðvesturkjördæmi“

„Ætlar hún næst að biðj­ast afsök­unar á að láta ofbeld­is­mann leiða list­ann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi?“ Þannig spyr Sóley Tóms­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti borg­ar­stjórnar og odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík, í færslu á Twitter þar sem hún deilir frétt um að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hafi beðist afsök­unar á notkun ljós­myndar af lista­verk­inu Sól­far­inu á haust­þingi flokks­ins í lok sept­em­ber. 

Sá sem leiðir list­ann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi er Magnús Þór Haf­steins­son, rit­stjóri hér­aðs­blaðs­ins Vest­ur­lands. Nýlega steig sam­býl­is­kona Magnúsar til margra ára, Ragn­heiður Run­ólfs­dóttir, fram í við­tali við Akureyri viku­blað og sagð­ist hafa verið í ofbeld­is­sam­bandi um ára­bil og þurft að leita til Kvenna­at­hvarfs­ins. 

Magnús Þór tjáði sig um málið í við­tali á Útvarpi Sögu á dög­unum. „Ég átta mig nátt­úru­lega strax á því að hér er verið að tala um mig eða sam­band okkar,“ sagði hann og þvertók fyrir að hafa beitt Ragn­heiði ofbeldi. Þá kvart­aði hann undan því að verið væri að hafa af sér æruna með ómak­legum hætti. Í þætt­inum var rætt um þann mögu­leika að setja á fót sér­stakan dóm­stól til að taka á „net­níði“. 

Sóley tjáði sig um mál Ragn­heiðar þegar hún steig fram fyrr í mán­uð­inum. „Ein af fyr­ir­myndum minnar kyn­slóðar segir frá því sem á daga hennar hefur drifið. Sterk og mögnuð, þrátt fyrir ofbeldið sem hún hefur orðið fyrir,“ skrif­aði Sóley á Facebook. „Fyrr­ver­andi mað­ur­inn hennar er aftur á móti á fullu í kosn­inga­bar­áttu sem odd­viti Flokks fólks­ins í NV-kjör­dæmi. Senni­lega full­viss um að hann muni reyn­ast verð­ugur til að gæta hags­muna almenn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár