Sýslumaður kvartar undan „ótæpilegri“ umræðu um starfsmenn embættisins

Þórólfur Hall­dórs­son, sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, seg­ist ekki hafa kynnt sér athuga­semdir fjöl­miðla­full­trúa Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu við lög­bannið sem sett var á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vík Media upp úr gögnum frá Glitni.

Sýslumaður kvartar undan „ótæpilegri“ umræðu um starfsmenn embættisins

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og starfs­menn emb­ætt­is­ins vilja ekki tjá sig um athuga­semdir Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu við lög­bannið sem sett var á allan frek­ari frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vík Media upp úr gögnum frá Glitni.

Þórólfur Hall­dórs­son sýslu­maður sagð­ist ekki hafa kynnt sér umrædda gagn­rýni sem fjallað var um í flestum fjöl­miðlum í gær og ekki lesið athuga­semdir Harlem Désir, fjöl­miðla­frels­is­full­trúa ÖSE. Þá kom hann af fjöllum þegar hann var spurður um staðla ÖSE að því er varðar vernd og tak­mörkun tján­ing­ar­frelsis. 

Þetta kom fram á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um fjöl­miðla­frelsi og lög­bann sýslu­manns sem nú stendur yfir og er sýndur í beinni útsend­ingu á vef Alþingis.

Full­trúar sýslu­manns sögð­ust hafa tak­markað svig­rúm til að tjá sig um ein­staka mál og tók sýslu­maður fram í upp­hafi fundar að nær allt það sem emb­ættið teldi sig geta sagt um málin hefði komið fram í til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum á dög­unum. Þá vís­aði hann sér­stak­lega til þess að upp­lýs­ingar um ýmsar emb­ætt­is­at­hafnir sýslu­manns væru und­an­þegnar upp­lýs­inga­lögum.

Sýslu­maður kvart­aði undan umræðu um lög­bannið og sagði að starfs­menn emb­ætt­is­ins hefðu setið undir „ómak­legri“ gagn­rýni og að fjallað hefði verið „ótæpi­lega“ um málið. Þingmenn þurftu að ganga á eftir spurn­ingum sínum til full­trúa sýslu­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár