Segir slagorð Miðflokksins ekkert eiga skylt við heróp íslenskra nasista

Kosn­inga­slag­orð sem Mið­flokk­ur­inn notar lík­ist slag­orði sem UMFÍ not­aði upp­haf­lega en íslenskir nas­istar stálu. Kosn­inga­stjóri Mið­flokks­ins segir slag­orðið vera afurð hópa­vinna innan flokks­ins. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur notað „Íslandi allt“ í skrifum sínum.

Segir slagorð Miðflokksins ekkert eiga skylt við heróp íslenskra nasista
Íslandi allt og Ísland allt Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sjálfur endað grein á „Íslandi allt“, gömlu slag­orði UMFÍ sem síðar var tekið upp af nas­istum, og nú hefur nýstofn­aður flokkur hans tekið upp slag­orðið „Ísland allt“. Mynd: Pressphotos

Slag­orðið sem nýstofn­aður stjórn­mála­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Mið­flokk­ur­inn, hefur valið sér er nán­ast sama slag­orð og flokkur íslenskra þjóð­ern­is­sinna not­aði á fjórða ára­tug síð­ustu aldar. Mið­flokk­ur­inn er með slag­orðið „Ísland allt“ á meðan Flokkur þjóð­ern­is­sinna not­aði „Íslandi allt“. Flokkur þjóð­ern­is­sinna var nas­ista­flokkur sem not­aði haka­kross­inn sem merki sitt og gaf út blaðið „Ísland“. Einu -i- munar því á slag­orðum flokk­anna tveggja. 

Enduðu oft á slag­orð­inuÍslenskir nas­istar á fjórða ára­tug síð­ustu aldar end­uðu skrif sín stundum á Íslandi allt. Hér er for­síða dag­blaðs­ins Ísland sem flokkur þjóð­ern­is­sinna gaf út - slag­orðið sést neðst á for­síð­unni.

Meðal dæma um notkun á slag­orð­inu „Íslandi allt“ má nefna eft­ir­far­andi klausu sem birt­ist í blað­inu Heimdalli árið 1934 undir fyr­ir­sögn­inni „Ræf­i­ils­skapur fyrir rétti“: „Nazistabullurnar, sem réð­ust á Guðjón Bald, sýndu sig álíka mikla ræfla fyrir rétt­inum eins og þeir voru hug­aðir 8 á móti 1 í myrkri. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár