Paolo Macchiarini ekki ákærður í plastbarkamálinu

Ítalski skurð­læknirinn Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna plast­barka­aðgerðanna á þremur einstak­lingum sem hann gerði í Svíþjóð á árunum 2011 til 2013. Fyrsti plast­barkaþeginn, Andemariam Beyene, var sjúklingur á Land­spítalanum og sendi sjúkra­húsið hann á Karolinska-sjúkra­húsið í Stokk­hólmi þar sem hann gekkst undir aðgerðina. Rannsókn stendur nú yfir á plast­barkamálinu á Íslandi.

Ráðstefna í háskólanum
Ráð­stefna í háskól­anum Paolo Macchiarini sést hér ræða við fyrsta plast­barka­þeg­ann, Andemariam Beyene, á ráð­stefnu sem haldin var í Háskóla Íslands sum­arið 2012 þar sem aðgerða­tækn­inni var hampað. Á milli þeirra stendur full­trúi frá banda­ríska fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiddi plast­bark­ann.

Ítalski læknirinn Paolo Macchiarini verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi eða stór­fellda líkams­árás af gáleysi út af plast­barka­aðgerðinni sem hann framkvæmdi á Andemariam Beyene árið 2011. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi ákæru­valdsins í Svíþjóð sem haldinn er í Stokk­hólmi núna í morgun. Andemariam Beyene var búsettur á Íslandi þar sem hann nam jarðfræði og bjó ásamt fjöl­skyldu sinni. 

Á blaðamanna­fundinum um niður­stöðu lögreglunnar í Stokk­hólmi í málinu kom fram að enginn annar en Macchiarini væri með niður­stöðu sakbornings í málinu og því er ljóst að aðrir læknar liggja ekki undir grun um meint lögbrot. Ein af niður­stöðunum í málinu er að ekki sé hægt að sanna að önnur læknis­meðferð en ígræðsla á plast­barka hefði getað haft betri afleiðingar í för með sér fyrir Andemariam Beyene og gert líf hans lengra. Saksóknari í málinu sagði þvert á móti að líklega hefði plast­barka­aðgerðin lengt líf Andemariams Beyene eitthvað. Þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Plastbarkamálið

FréttirPlastbarkamálið

Uppljóstr­arar: „Plast­barkamálið er ennþá opið sár“

Tveir af uppljóstr­ur­unum í plast­barkamálinu svokallaða, Karl Henrik Grinnemo og Oscar Simonsson, lýsa reynslu sinni af því að segja frá því sem gerðist á Karolinska-sjúkra­húsinu þar sem þeir unnu. Karl Henrik segist hafa verið með sjálfsvígs­hugsanir eftir að hann varð fyrir hefndar­aðgerðum innan Karolinska-sjúkra­hússins. Þeir segja að uppgjörinu við plast­barkamálið sé hvergi nærri lokið í Svíþjóð og að gera þurfi almennilega rannsókn á því þar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár