Þakklátur velgjörðarmönnum sínum

Hjalti Sigurjón Hauksson seg­ist ekki vita til þess að Benedikt Sveins­son hafi hlut­ast til um að honum yrði haldið í vinnu hjá Kynn­is­ferðum, en það megi vel vera.

Þakklátur velgjörðarmönnum sínum

Hjalti Sigurjón Hauksson seg­ist aldrei hafa getað end­ur­goldið til fulls þá hjálp sem hann hefur fengið frá Benedikt Sveins­syni og fleiri athafna­mönnum. Hann viti ekki til þess að Benedikt hafi þrýst á að honum yrði haldið í vinnu hjá Kynn­is­ferðum, en það megi þó vel vera.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Stundin greindi frá því í lok ágúst að Hjalti, sem dæmdur var árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega á tólf ára tíma­bili, hefði fengið upp­reist æru. 

Þegar í ljós kom að Benedikt Sveins­son, faðir for­sæt­is­ráð­herra, hafði veitt Hjalta með­mæli vegna umsóknar hans um upp­reist æru gaf Benedikt út yfir­lýs­ingu þar sem hann lýsti kynnum þeirra með eft­ir­far­andi hætti:

Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunn­ingja­fólki okkar hjóna frá skóla­árum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjár­hags­mála eða í tengslum við atvinnu­leit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Að sögn Hjalta hafa þeir Benedikt þekkst í meira en 20 ár og er honum hlýtt til hans. „Ef Bjarni hefur 10 pró­sent af mann­kostum Bene­dikts, þá hlýtur hann að vera besti for­sæt­is­ráð­herra sem Ísland hefur átt,“ segir Hjalti.

Hjalti seg­ist í raun aldrei hafa getað end­ur­goldið þá greiða sem Benedikt hefur gert sér, nema með við­leitni sinni til að verða betri og heil­steypt­ari maður. Hann hafi oft kosið í próf­kjörum hjá Sjálf­stæð­is­flokknum og stutt Bjarna Bene­dikts­son í póli­tík. Það hafi hann þó gert af sann­fær­ingu frekar en af sér­stakri greiða­semi. 

Fékk lögmannsþjónustu hjá  LEX

Starfaði á LEXBjarni Bene­dikts­son starf­aði við lög­mennsku á þessum tíma og var með­eig­andi að lög­manns­stof­unni Lex.

Árið 2002 var Hjalti kærður til lög­reglu og svo ákærður, gefið að sök að hafa mis­notað stjúp­dóttur sína nær dag­lega á 12 ára tíma­bili frá því hún var um fimm ára gömul. Það var þá sem hann fór á fund Bjarna Bene­dikts­sonar sem þá starf­aði við lög­mennsku og var einn af með­eig­endum lög­manns­stof­unnar Lex. Hjalti segir að Bjarni hafi stappað í sig stál­inu og útvegað sér góðan lög­mann á stof­unni, Ragn­heiði Margréti Ólafs­dóttur. Hún varði Hjalta í hér­aði en Helgi Jóhann­es­son, einn af eig­endum Lex, var verj­andi hans fyrir Hæsta­rétti. Segist Hjalti enn ekki hafa greitt til fulls fyrir þá þjón­ustu sem Lex veitti honum. 

Nokkru eftir að Hjalti hafði afplánað fang­els­is­dóm­inn fékk hann vinnu hjá Kynn­is­ferðum. Sveinn Eyjólfur Matth­í­as­son, fyrr­ver­andi verk­efn­is­stjóri hjá Kynn­is­ferðum, hefur lýst því í við­tali við Stundina hvernig hann og fleiri innan fyr­ir­tæk­is­ins voru beittir þrýst­ingi til að halda Hjalta í vinnu. Þegar Stundin ræddi við brota­þola Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar í byrjun sept­em­ber sagði hún að það hefði valdið henni óþæg­indum að Hjalti ynni hjá Kynn­is­ferðum, enda hafi hún sjálf á þessum tíma verið í vinnu sem krafð­ist þess að hún fengi reglu­lega far með rútum fyr­ir­tæk­is­ins. Hún hafi gætt þess að þurfa ekki að sitja í rútu sem Hjalti væri að keyra.

Hjalta var sagt upp eftir að umræða vakn­aði innan fyr­ir­tæk­is­ins um kyn­ferð­is­brota­dóm­inn og starfs­menn fóru að núa honum mál­inu um nasir. Í kjöl­farið bár­ust skila­boð að ofan, úr eig­enda­hópi Kynn­is­ferða, um að aft­ur­kalla bæri upp­sögn­ina taf­ar­laust. Á þeim tíma voru Benedikt Sveins­son og fjöl­skylda hans yfir­gnæf­andi í eig­enda­hópi Alfa hf. sem átti allt hlutafé í Kynn­is­ferðum. Fyr­ir­tækið er enn í dag að stórum hluta í eigu for­eldra, föð­ur­bróður, systk­ina og frændsystk­ina Bjarna Bene­dikts­sonar.

„Við vissum af þessum vina­tengslum Hjalta og Bene­dikts [Sveins­sonar]. Hjalti tal­aði um það við okkur mjög oft, að þeir væru bestu vinir og svo fram­vegis,“ segir Sveinn Eyjólfur í sam­tali við Stundina og bendir á að þrýst­ing­ur­inn um að halda Hjalta í vinnu hjá Kynn­is­ferðum hafi borist að ofan, í gegnum æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins. „Hann fór samt alltaf þessa leið. Hann fór í gegnum stjórn­ar­for­mann­inn, sem hluti af stjórn­inni, niður til fram­kvæmda­stjóra og frá fram­kvæmda­stjóra til mín og rekstr­ar­stjóra.“ 

Aðspurður um málið við­ur­kennir Hjalti að það geti hugs­ast að hann hafi notið góðs af vin­skap sínum við Benedikt Sveins­son hjá Kynn­is­ferðum. Þá seg­ist hann vera mál­kunn­ugur áhrifa­mönnum í Sjálf­stæð­is­flokknum og það hafi stundum komið sér vel fyrir hann, þegar vantað hefur verk­efni eða störf. Þetta hafi ekki síst átt við í gamla daga þegar hann rak skurð­gröfu­þjón­ustu. Að sama skapi hafi honum verið refsað af full­trúum ann­arra flokka, til að mynda í borg­inni. „Svo segja sumir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé spilltur. Ætli það séu ekki miklu frekar hinir. Ef eitt­hvað er, þá ættum við sjálf­stæð­is­menn að vera grimmari,“ segir Hjalti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár