Leiðbeiningar um hvernig minnka má spillingu á Íslandi

Samtökin Gagnsæi, sem berj­ast gegn spill­ingu, leggja fram lista yfir umbætur sem þarf að gera á Íslandi. Eitt atriðið er að minnka leynd.

Leiðbeiningar um hvernig minnka má spillingu á Íslandi
Ísland úr lofti Leynd yfir upp­lýs­ingum og til­heyr­andi eft­ir­lits­leysi ýtir undir spill­ingu. Mynd: NASA

Samtökin Gagnsæi, sem berj­ast gegn spill­ingu á Íslandi, vara við því að „meiri­háttar end­ur­skoðun á íslenskri stjórn­sýslu [sé] óhjá­kvæmi­leg“, sama hvaða flokkar fari með sigur af hólmi eftir kom­andi alþing­is­kosn­ingar.

„Stjórn­ar­slitin sýna að venjur kerf­is­ins – ógagnsæ stjórn­sýslu­ferli og þar með venju­bundnar ákvarð­anir sem í raun þola ekki dags­ins ljós – geta ekki gengið lengur,“ segir í ályktun stjórnar Gagnsæis eftir stjórn­ar­slit sem urðu í kjöl­far trún­að­ar­brests vegna leyndar og hags­muna­tengsla í upp­lýs­ingum um veit­ingu upp­reistar æru til handa dæmdum brota­mönnum.

Samtökin segja að það sem í ljós hafi komið eftir að leynd var aflétt, að saka­menn gátu fengið upp­reist æru og „óflekkað mann­orð“, án eft­ir­lits, yfir­sýnar eða aðkomu dóm­stóla, „sýni veik­leika kerfis okkar í hnot­skurn“. 

„Það sem nú hefur loks­ins komið upp á yfir­borðið er aðeins eitt dæmi um kerf­is­læga spill­ingu. Það verður vart aug­ljós­ara þegar spurt er hvaða rök geti staðið til þess að ein­stak­lingar sem gerst hafa sekir um jafn­vel margra ára kyn­ferð­is­of­beldi geti fengið stað­reyndir um for­tíð sína þurrk­aðar út úr kerf­inu og hagað sér eins og það sem þeir voru dæmdir fyrir hafi aldrei gerst.“ 

Gagnsæi leggur til leið­bein­ingar í fimm liðum sem þurfi að fylgja eftir á Íslandi, meðal ann­ars að vernda gagn­rýnendur og upp­ljóstr­ara, að auka skiln­ing á hættum hags­muna­á­rekstra stjórn­mála­manna og svo minnka leynd.

Svona minnkum við spillingu*

1. Tryggja þarf að þeir sem benda á starf­semi eða venjur sem stand­ast ekki lög eða sið­ferði­lega mæli­kvarða njóti þeirrar verndar sem lög geta veitt gegn ofsóknum.

2. Nauð­syn­legt er að vinna með alþjóða­stofn­unum á borð við OECD, GRECO og Sam­ein­uðu þjóð­irnar til að auka gagn­sæi í stjórn­sýslu og draga úr spill­ing­ar­hættum.

3. Efla þarf vit­und um mik­il­vægi þess að ekki sé reynt að leyna hags­munum og hags­muna­tengslum. Alltof algengt er að stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn sinni ekki þess­ari grund­vall­ar­skyldu. 

4. Stjórn­völd eiga að kosta kapps um að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar sem leyfi­legt er að veita, frekar en að halda því leyndu sem lög krefj­ast ekki að upp­lýst sé um.

5. Tryggja að eng­inn hluti stjórn­sýsl­unnar sé eft­ir­lits­laus.

 

* Listinn kemur frá Gagnsæi, fyr­ir­sögn er fjöl­mið­ils­ins.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár