Launaskrið lítið miðað við spennuna á vinnumarkaði

Atvinnu­rek­endur flytja inn starfs­fólk frekar en að keppa sín á milli um það vinnu­afl sem fyrir er með yfir­boðum í launum. Lækkun virð­is­auka­skatts ætti að halda verð­bólgu í skefjum að því er fram kemur í árs­fjórð­ungs­riti Seðla­bank­ans sem kom út í dag.

Launaskrið lítið miðað við spennuna á vinnumarkaði

Launa­skrið er lítið á Íslandi miðað við þá spennu sem ríkir á vinnu­mark­aði. Skýr­ingin er lík­lega sú að atvinnu­rek­endur flytja inn starfs­fólk frekar en að keppa sín á milli um það vinnu­afl sem fyrir er með yfir­boðum í launum.

Þetta kemur fram í Pen­inga­málum, árs­fjórð­ungs­riti Seðla­bank­ans, sem birt var í dag. Launa­hækk­anir sem kveðið er á um í kjara­samn­ingum og tóku gildi í maí og júní hafa komið fram í launa­vísi­tölu Hag­stof­unnar í sam­ræmi við það sem gert var ráð fyrir í maí­spá bank­ans. Launa­vísi­talan hækk­aði um 3,1% milli fjórð­unga og um 6,7% frá fyrra ári en kaup­máttur launa jókst um 4,8%. Auk þess eru verð­bólgu­horfur áþekkar því sem spáð var í maí og talið að verð­bólga verði komin í 2% á seinni hluta árs­ins.

Fram kemur að fyr­ir­huguð lækkun virð­is­auka­skatts, sem áætlað er að taki gildi í byrjun árs­ins 2019, ætti að draga tals­vert úr verð­bólgu, en án áhrifa þeirrar lækk­unar næði verð­bólga hámarki í 3,4% um mitt ár 2019. 

Bent er á að verð­bólgu­horfur eru háðar ótal óvissu­þáttum. Þannig geti áfram­hald­andi lækkun krón­unnar valdið meiri inn­fluttum verð­bólgu­þrýst­ingi en gert er ráð fyrir í spám bank­ans, en jan­framt geti spenna á vinnu­mark­aði og aukn­ing einka­neyslu heim­ila verið van­metin. 

„Hækkun hús­næð­isliðar verð­bólg­unnar gæti einnig verið van­metin ef núver­andi ójafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði áger­ist enn frekar. Einnig gæti svig­rúm fyr­ir­tækja til að taka á sig frek­ari kostn­að­ar­hækk­anir verið komið að þol­mörkum. Eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur gæti auk þess verið van­met­inn ef slökun á aðhalds­stigi opin­berra fjár­mála reyn­ist enn meiri en grunn­spáin gerir ráð fyrir,“ segir í Pen­inga­málum.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í dag að halda vöxtum bank­ans óbreyttum. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því áfram 4,5%. „Útlit er fyrir að hag­vöxtur í ár verði hraður eins og á síð­asta ári en nokkru hæg­ari en spáð var í maí­hefti Pen­inga­mála. Hag­vöxt­ur­inn er einkum drif­inn af vexti ferða­þjón­ustu og einka­neyslu auk þess sem útlit er fyrir slökun í aðhaldi opin­berra fjár­mála í ár,“ segir í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar sem birt var í morgun. Bent er á að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum kalli á pen­inga­legt aðhald. Aðhalds­stigið ráð­ist af fram­vindu efna­hags­mála og annarri hag­stjórn.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár