Já, það er sannkallað skítaveður í Kaupmannahöfn! Dagbók XVI

Illugi Jök­uls­son er far­inn að taka undir kvart og kvein Dana yfir veðr­inu

Já, það er sannkallað skítaveður í Kaupmannahöfn! Dagbók XVI
Svona er veðrið í Kaup­manna­höfn núna! Myndin er tekin á hröðum flótta undan þrumum, eld­ingum og regn­dropum á stærð við app­el­sínur.

Fyrst eftir að ég kom hingað til Kaup­manna­hafnar fyrir mán­uði fannst mér hlægi­legt að heyra að Danir kvört­uðu sáran undan sumr­inu.

Mér skild­ist það væri eitt­hvert versta sumar í manna minnum.

En mér fannst ósköp nota­legt þótt stundum kæmi dropi úr lofti og ég væri alls ekk­ert að hníga niður úr hita.

Haha, þeir hefðu átt að vera í Reykja­vík fyrri part sum­ars, hugs­aði ég.

Nú er ég hins vegar far­inn að taka undir þetta kvart og kvein.

Með heið­ar­legum und­an­tekn­ingum fáeinna þokka­legra sól­ar­daga, þá hefur verið hér ósköp deyfð­ar­legt og dumb­ungs­legt.

Og suma daga satt að segja alveg ömur­legt og jafn­vel kulda­legt veður.

Núna er til dæmis því­líkt steypiregn að ég hef sjaldan upp­lifað annað eins, að minnsta kosti ekki síðan ég hjólaði til Hels­ingja­eyrar um dag­inn.

(Reyndar er rign­ingin núna miklu verri en þá. Ég var bara að koma því að að ég hefði hjólað til Hels­ingja­eyrar um dag­inn.)

Og öskr­andi þrum­urnar eru þétt­ari en ég hef áður heyrt.

Ekkert lágt muldur þar á ferð.

Og þarna kom ein eld­ing enn!

Og að horfa út um glugg­ann er eins og horfa inn í fiska­búr, nema fisk­arnir eru farnir í skjól.

Þið megið sann­ar­lega prísa ykkur sæl yfir góð­viðr­inu sem mér skilst að sé dag eftir dag á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár