Leitar álits umboðsmanns Alþingis vegna skipunar landsréttardómara

Jón Hösk­ulds­son, hér­aðs­dóm­ari hefur ákveðið að kvarta undan ákvörðun Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um skipun dóm­ara til umboðs­manns Alþingis. Hann hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann höfði mál en ætlar að sjá hver við­brögð umboðs­manns verða.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra
Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra Tveir umsækj­endur sem Sigríður skipti út við skipun á dóm­urum við Lands­rétt hafa höfðað mál vegna ákvörð­un­ar­innar. Þá hefur þriðji kvartað undan mál­inu til umboðs­manns Alþingis. Mynd: xd.is

Jón Hösk­ulds­son hér­aðs­dóm­ari hefur leitað til umboðs­manns Alþingis vegna skip­unar á dóm­urum við Lands­rétt. Jón var á meðal þeirra sem mats­nefnd um hæfi dóm­ara mat meðal fimmtán hæf­ustu umsækj­enda en Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra ákvað að skipa ekki.

Í kjöl­far skip­un­ar­innar óskaði Jón eftir form­legum rök­stuðn­ingi fyrir ákvörð­un­inni. „Mér barst hann þann 9. júlí og í kjöl­far þess hef ég kvartað yfir ákvörð­un­inni til umboðs­manns Alþingis,“ segir Jón. Þá seg­ist hann ætla að sjá hvað umboðs­maður hefur um málið að segja áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann höfði mál.

Í rök­semda­færslu Sigríðar fyrir því að víkja frá nið­ur­stöðu mats­nefndar um það hvaða fimmtán umsækj­endur skuli skipa sem dóm­ara í Lands­rétt lagði hún áherslu á aukið vægi dóm­ara­reynslu. Þannig skipti Sigríður út fjórum umsækj­endum fyrir aðra fjóra sem allir eru starf­andi hér­aðs­dóm­arar. Jón skrif­aði stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis bréf vegna máls­ins í maí og vakti athygli á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár