Samfélagið í menntaskólanum var eins og þvingað hjónaband

Gunn­laugur Ást­geirs­son kenn­ari heldur ennþá tengslum við bekkj­ar­fé­laga sína í Mennta­skól­anum á Laug­ar­vatni rúmum fjórum ára­tugum eftir útskrift.

Samfélagið í menntaskólanum var eins og þvingað hjónaband
Heldur upp á 40 ára kenn­ara­af­mæli í haust Gunn­laugur er íslensku- og sögu­kenn­ari og seg­ist hafa notið þess að geta stundum farið á bak við atburð­ina í nútím­anum og kannað þá.

Á svona litlum heima­vist­ar­skóla eins og Mennta­skól­anum á Laug­ar­vatni kom fólk á haustin, skrapp kannski heim um jólin, en var ann­ars fram að vori, þannig að það þurfti að búa til sínar eigin skemmt­anir og allt sitt þar. Sam­fé­lagið var mjög afmarkað og lokað, þannig að það varð mjög þétt og allir þekkt­ust mjög vel.

Ég hef stundum líkt þessu við þvingað hjóna­band þar sem fólk hefur engan kost annan en að vera saman ef það vill kom­ast af í sínu umhverfi. Þegar ég kynnt­ist síðan fólki sem hafði verið í skólum í Reykja­vík, eins og Kenn­ara­skól­anum og MR, þá skyldi ég ekki alveg strax að það var ekki jafn nátengt og við vorum.

Þessi tengsl hafa hald­ist mjög mikið því þau voru ótrú­lega sterk, og það er ennþá hópur fólks sem hitt­ist reglu­lega. Það voru eitt­hvað um 120 nem­endur þegar ég var þar, og lengst af voru í mínum bekk tæp­lega 50 en end­uðu með því að vera 34 sem klár­uðu. Það er allt annað en þeir 12–1.300 sem eru í Hamra­hlíð þar sem ég kenni, en ég held upp á 40 ára kenn­ara­af­mæli mitt þar í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár