Takmarka aðgang Ólafs að rekstri Neytendasamtakanna: „Ekki lengur starfsmaður skrifstofu“

Ólafur Arnarson situr sem fast­ast þrátt fyrir van­traust stjórnar og starfs­manna.

Takmarka aðgang Ólafs að rekstri Neytendasamtakanna: „Ekki lengur starfsmaður skrifstofu“

Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna gagn­rýnir harð­lega fram­göngu Ólafs Arn­ar­sonar, for­manns sam­tak­anna, „óhóf­leg útgjöld“ hans og þrá­setu á for­manns­stóli þrátt fyrir van­traust. 

„Ljóst er að fara þarf í aðgerðir til að bjarga sam­tök­unum og er það mat bæði stjórnar og starfs­manna og að slíkt verði ekki gert með for­mann­inn inn­an­borðs. Stjórn hefur nú þegar gripið til aðgerða til að tak­marka aðgang for­manns að dag­legum rekstri. Hann er ekki lengur starfs­maður skrif­stofu og hefur ekki heim­ildir til að skuld­binda sam­tökin né að efna til nokk­urra útgjalda af hálfu þeirra,“ segir í til­kynn­ingu frá stjórn­inni á vef sam­tak­anna.

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hefur öllu starfs­fólki Neyt­enda­sam­tak­anna verið sagt upp í ljósi alvar­legrar fjár­hags­stöðu sam­tak­anna. „Þessi staða er að mestu leyti til­komin vegns óhóf­legra útgjalda sem for­maður sam­tak­anna, Ólafur Arnarson, hefur efnt til án aðkomu stjórnar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Þegar stjórn varð ljóst hver staðan var lýsti hún yfir van­trausti á for­mann­inn og skor­aði á hann að stíga til hliðar. Þá hefur starfs­fólk sam­tak­anna einnig lýst yfir van­trausti á for­mann og biðlað til hans að segja af sér. Þrátt fyrir að for­manni hafi verið gerð grein fyrir alvar­leika máls­ins, sem hann ber að miklu leyti ábyrgð á, situr hann sem fast­ast. Stjórn og starfs­fólk vinnur sam­hent að því að koma Neyt­enda­sam­tök­unum aftur á réttan kjöl enda er mik­il­vægi þeirra fyrir þjóð­fé­lagið óum­deilt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Neytendamál

FréttirNeytendamál

Greiðslu­byrðin tvö­fald­að­ist um mán­að­ar­mót: „Það má ekk­ert koma upp á“

Greiðslu­byrði af hús­næð­is­láni Gígju Skúla­dóttur tvö­fald­að­ist síð­ustu mán­að­ar­mót. Þegar búið er að greiða önnur mán­að­ar­leg gjöld stendur hún eftir með lítið á milli hand­anna til þess að verja í grunn nauð­synjar á borð mat. Hún segir að lítið megi út af bregða án þess að hún lendi í fjár­hags­vand­ræðum. Hún spyr hvernig venju­legu fólki tak­ist að lifa lífi sínu í núver­andi efna­hags­á­standi.
FréttirNeytendamál

Lagt til að ósáttir flug­far­þegar greiði Sam­göngu­stofu 5.000 króna mál­skots­gjald

Drög að nýrri reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega fóru nýverið í sam­ráðs­gátt. Samkvæmt drög­unum er lagt til að kvar­tendur greiði Sam­göngu­stöfu 5.000 króna gjald fyrir máls­með­ferð í ágrein­ings­málum sem skotið er til stofn­un­ar­innar. Þá kveður ný reglu­gerð á um að Sam­göngu­stofa muni fram­vegis ekki taka við erindum vegna skemmds eða glat­aðs far­ang­urs.
FréttirNeytendamál

Fjár­sterkir ein­stak­lingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða

Samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun fjölg­aði íbúðum í eigu lög­að­ila og ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð um 2.300 á síð­asta ári. Á sama tíma hefur fjölgun íbúða í eigu ein­stak­linga sem aðeins eiga eina íbúð dreg­ist mikið saman und­an­farin þrjú ár. Líta þarf aftur til árs­ins 2010 til þess að sjá sam­bæri­lega þróun.
FréttirNeytendamál

Sigurður Ingi sker upp herör gegn lóða­braski

Sigurður Ingi Jóhann­es­son inn­við­a­ráð­herra til­kynnti nú fyrir skömmu á Facebook-síðu sinni að hann hafi mælt fyrir frum­varpi sem felur í sér hvata fyrir lóð­ar­hafa til að hefja upp­bygg­ingu á íbúð­ar­hús­næði án tafa eins og deiliskipu­lag gerir ráð fyrir. Til­gangur frum­varps­ins er meðal ann­ars sá að draga úr lóða­braski sem Sigurður Ingi lýsti sem „ófor­svar­an­legu athæfi“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu