Rof frá banda­manni Þátt­tak­endur hlusta á Volodímír Selenskí, for­seta Úkraínu, tala í gegnum fjar­funda­búnað við opn­un­ar­at­höfn örygg­is­ráð­stefn­unnar Warsaw Security Forum í Varsjá í Póllandi á mánu­dag. Mynd: WOJTEK RADWANSKI / AFP

Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi

Úkra­ínskir emb­ætt­is­menn segja að Banda­ríkin hafi hótað að stöðva miðlun upp­lýs­inga um eld­flauga­skot Rússa og að breyt­ingar á Starlink hafi skert teng­ingar dróna hers­ins.

Úkraína sak­aði Banda­ríkin í dag um að hjálpa Rúss­landi með því að vara ekki við yfir­vof­andi eld­flauga­árásum og tor­velda við­brögð úkra­ínska hers­ins með breyt­ingum á Starlink-kerf­inu, sem her­inn notar á víg­vell­inum.

Volodimír Selenskí Úkra­ínu­for­seti sagði það „með öllu órétt­látt“ að engin við­vörun hefði borist um hrinu öfl­ugra árása í gær­kvöldi og snemma í morgun. Hann sak­aði Rússland um að virða vís­vit­andi að vettugi meint „vopna­hlé í orku­málum“ sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hafði til­kynnt.

Hátt­settur emb­ætt­is­maður í Kænu­garði stað­festi að Banda­ríkin hefðu und­an­farna daga hótað að hætta að veita upp­lýs­ingar um eld­flauga­skot Rússa sem Úkraína notar til að verj­ast árásum. Trump neit­aði því í gær að hafa gert það.

Emb­ætt­is­mað­ur­inn og full­trúar varn­ar­mála bentu einnig á að Washington kynni að standa að því að hægt hefði á netteng­ingu sumra Starlink-bún­aða. Þeir nýt­ast úkra­ínska hernum við árásir á land­svæði her­numin af Rússum og við stjórnun dróna sem granda árás­ar­drónum.

„Það er …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þarna fær Trump blóraböggul sem hann getur bent á í staðin fyrir sína eigin heimsku, vanhæfni og glæpsamlega
    siðleysi. Gleymum ekki Úkraínu tengingunni á fyrra kjörtímabili Trumps , þegar hann fékk á sig vantrausts tillöguna vegna vægast sagt óeðlilegs símtals við Zelensky. Zelenski vildi ekki láta draga sig inn í Amerískt valda samsæri og Trump hefur aldrei fyrirgefið það.
    Að treysta Bandarískum stjórnvöldum í dag er eins og að treysta barnaníðing til æskulíðsstarfs. Þannig að það þarf enginn að vera hissa þegar illa fer, altént allir sem vilja sjá og skilja, hinir verða sjálfsagt alveg bit og vilja ekki trúa.
    Það eina sem maður getur gert sem einstaklingur er að forðast að manns eigin þarfir styðji fjárhagslega við fjórða ríki Trumps, því forðast ég eins og ég get allt sem Amerískt er, og versla vörur frá öðrum löndum. Þetta hreyfir ekki mikið nálina ég veit það , en altént eru ekki Íranskar skólastúlkur og Úkraínskir borgarar eða Palestínskir drepnir með dollurum sem komu frá mér.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár