Samkeppniseftirlitið hefur framkvæmt húsleit hjá Ölgerðinni vegna rannsóknar á ætluðum brotum gegn banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Húsleitin fer fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.
Bera hf, móðurfélag Ölgerðarinnar, greindi frá rannsókninni í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun. Þar sagði að rannsóknin tæki til tímabilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag.
Í tilkynningu sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér í kjölfarið kemur fram að rannsóknin nái til háttsemi Beru, dótturfélagsins Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og annarra tengdra félaga á drykkjarvörumarkaði.
Markmiðið sé að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á þeim mörkuðum sem rannsóknin tekur til og jafnframt hvort fyrirtækið hafi virt bann samkeppnislaga við misnotkun slíkrar stöðu.
Eftirlitið segist hafa talið nauðsynlegt að framkvæma húsleit til að afla gagna og tryggja varðveislu þeirra sem kunna að hafa þýðingu fyrir rannsóknina.
„Samkeppniseftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur ekki í sér niðurstöðu um …



















































Athugasemdir