Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði

Fjár­mála­ráðu­neyt­ið met­ur tekjutap ef gjalda­hækk­an­ir verða tak­mark­að­ar við verð­bólgu­markmið Seðla­bank­ans vera 1,6 millj­arða króna. Eng­in ákvörð­un hef­ur ver­ið tek­in en Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir rík­is­stjórn­ina reiðu­búna að tak­marka hækk­an­ir við 2,5 pró­sent ef aðr­ir leggi sitt af mörk­um og kjara­samn­ing­ar haldi.

Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Glöð Það var mikil gleði hjá forystufólki ríkisstjórnarinnar þegar Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti fyrstu hallalausu fjárlög ríkisins síðan 2018. Mynd: Golli

Afkoma ríkissjóðs myndi versna um 1,6 milljarða króna ef dregið yrði úr fyrirhuguðum gjaldahækkunum ríkisins. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn Heimildarinnar um áhrif þess að takmarka hækkanirnar við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans. 

Fjárlagafrumvarp næsta árs gerir ráð fyrir 4,7 milljarða króna afgangi. Minni gjaldahækkanir myndu því, að öðru óbreyttu, lækka afganginn í 3,1 milljarð króna. Rúmur þriðjungur áætlaðs afgangs myndi þannig hverfa.

„Ef til lækkunar kæmi má gera ráð fyrir að gjöldin lækki um 1,6 milljarð og afkoma ríkissjóðs myndi þá versna sem því næmi,“ segir í svari ráðuneytisins.

Háð því að samningar haldi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu í gær að ríkisstjórnin væri reiðubúin að takmarka hækkanir almennra krónutölugjalda og gjaldskráa ríkisstofnana við 2,5 prósent. Jafnframt yrði tilmælum beint til fyrirtækja í eigu ríkisins.

Hún tengdi það þó …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
5
StjórnmálHorft til Evrópu

Þrátt fyr­ir nei „lok­um við að sjálf­sögðu ekki á Evr­ópu“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evr­ópu eða grafa und­an EES-samn­ingn­um. Orð henn­ar falla á sama tíma og stjórn­ar­and­stað­an vill stað­fest­ingu á stöðu að­ild­ar­um­sókn­ar­inn­ar og frum­varp um bók­un 35 ligg­ur aft­ur fyr­ir Al­þingi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár