Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna

Tvö lög­reglu­emb­ætti hafa krafið þrjá við­burð­ar­hald­ara um sam­an­lagt 47 millj­ónir vegna þriggja við­burða í sumar. Við­burða­hald­arar eru hugsi vegna máls­ins og tveir hafa kært gjald­töku lög­reglu.

Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Eclipse hátíðin Sól­myrkva­há­tíðin á Hell­issandi tókst vel upp og gekk snurðu­laust fyrir sig. Mynd: Caitlin Guidry

Lög­reglan á Suð­ur­landi og á Vest­ur­landi hafa fengið sam­an­lagt 47 millj­ónir í greiðslur frá við­burð­ar­höld­urum vegna lög­gæslu í kringum þrenna við­burði, það eru tón­leikar Kaleo á Þing­völlum, Sól­myrkva­há­tíð­ina á Hell­issandi og Lopa­peysu­ballið á Akranesi.

Við­burða­hald­arar eru hugsi vegna greiðsln­anna sem þarf að inna af hendi fyrir fram og kalla eftir sam­ræmi á milli lög­reglu­emb­ætta og að tekið sé til­lit til gæslu stað­ar­hald­ara. Einn við­burða­hald­ar­inn hefur kært gjald­tök­una til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og telur að hann hafi verið ofrukk­aður um millj­ónir. Annar kærði fyrr á árinu gjald­töku vegna þorra­blóts á Akranesi en tap­aði mál­inu. Lög­reglan hefur heim­ild til þess að rukka við­burða­hald­ara fyrir við­veru sína auk þess sem úrskurðir atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins hafa ávallt fallið með lög­reglu­emb­ætt­inu.

Segir samræmingu skorta

„Það verður að vera ein­hver sam­ræm­ing í því hvernig þessi kostn­aður er fund­inn,“ segir Ísólfur Har­alds­son, við­burða­hald­ari á Akranesi. Ísólfur hefur náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri með lista- og bæj­ar­há­tíð­inni Lopa­peys­unni sem var fyrst haldin á Akranesi …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Við getum gert þetta allt sjálf ? Er það bara lýgi ? Það er alltaf einhver annar sem á að borga, bara ekki Ég ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár