Í gær hlustaði ég á viðtal á Sprengisandi við hagfræðing um væntanlega skattahækkun á hagnað banka. Spurt var hvort ekki væri sjálfsagt að hækka skatt á stórlega aukinn hagnað bankanna, sem væri að mestu leyti kominn til vegna vaxtahækkana Seðlabankans, en ekki vegna árangurs í rekstri bankanna?
Óskynsamlegt að skattleggja breiðu bökin!
Svar hagfræðingsins var þetta: Það þykir ekki góð skynsemi í hagfræðinni að hækka skatta á það sem gengur vel!
Þá vitum við það. Þetta þýðir að almennt þykir skynsamlegra í hagfræði að hækka skatta á það sem gengur illa eða þokkalega frekar en það sem gengur vel. Frekar mætti hækka skatta á lægri og millitekjur en hærri tekjur. Frekar skuli hækka skatta á litlar eignir og skuldir en síður á miklar skuldlausar eignir.
Þarna er komin skýring á því hvers vegna skattbyrði þeirra sem eiga miklar eignir og hafa mjög miklar fjármagnstekjur er lægri en skattbyrði venjulegs launafólks og lífeyrisþega. Ekki bara á Íslandi, heldur er það algengt víða á Vesturlöndum, þar sem sömu hagfræðiáhrifa hefur gætt.
Warren Buffett, einn ríkasti fjárfestir Bandaríkjanna, hefur ítrekað óskað eftir því að skattar hans verði hækkaðir svo hann greiði ekki minni skatt en fólkið sem skúrar skrifstofuna hans – en án árangurs. Trump-stjórnin lækkaði skatta á þá ríkustu enn meira og áformar nú niðurskurð á heilbrigðisþjónustu til tekjulægri hópa, vegna erfiðrar fjárhagsstöðu ríkisins.
Frekar að skattleggja mjóu og veikburða bökin
Þess vegna leggja áhrifamiklir hagfræðingar líka til að helsta verkfærið í baráttu við verðbólguna verði hækkun vaxta á skuldugar fjölskyldur, sem eru að koma sér upp húsnæði, fólkið sem er á mesta basl-skeiðinu á lífshlaupinu, með ung börn og miklar húsnæðisskuldir. Þetta er kallað „peningastefna“, hugsanlega til að beina athyglinni frá innihaldinu.
Vaxtahækkun er ígildi þess að leggja sérstakan skatt á skuldir þeirra eignaminni, bæði í hópi fjölskyldna og minni fyrirtækja, til að ná niður verðbólgunni (draga úr eftirspurn í samfélaginu).
Um leið er þeim efnuðustu hlíft, þeim sem skulda minna og hafa hæstu tekjurnar, þeim sem hefur gengið best að komast upp brekkuna í samfélagsstiganum. En það er þó fólkið sem er líklegra til að standa fyrir eftirspurnarþenslunni sem örvar verðbólguna, með mikilli einkaneyslu sinni og fjárfestingum. Svona er þetta öfugsnúið – og dugar enda illa til að vinna á verðbólgunni.
Mun öflugri leið gegn verðbólgu væri að leggja meiri byrðar á þau efnuðustu, breiðu bökin.
Svona er nýfrjálshyggju-hagfræðin
Þessi umræddi hagfræðingur sem var á Sprengisandi er alls ekkert sérstaklega slæmur eða illa innrættur, reyndar mjög elskulegur maður. Það sem hann sagði endurspeglar einfaldlega þau sjónarmið sem eru ríkjandi meðal meginstraums hagfræðinga í samfélaginu, bæði hér á landi og erlendis. Þetta er ráðandi tíðarandinn í hagfræðinni.
En það eru ekki allir hagfræðingar á þessari línu, til dæmis hagfræðingar verkalýðshreyfingarinnar. Fyrir tíma nýfrjálshyggju-hagfræðinnar þótti eðlilegast að leggja mestu byrðarnar á breiðu bökin, þau sem áttu mest og höfðu hæstu tekjurnar. Adam Smith lagði það einmitt til – enda myndi hann upprisinn væntanlega fúlsa við nýfrjálshyggju nútímans, þó sölumenn hennar reyni gjarnan að skreyta sig með nafni hans.
Launahækkanir almennings stærsta vandamálið?
Nýfrjálshyggju-hagfræðingar lýsa oft miklum áhyggjum af launahækkunum almenns launafólks, líka þegar þær eru hóflegar, en þeir finna sjaldnar að miklum hækkunum launa, bónusa og kaupréttar forstjóra og bankastjóra eða annarra hátekjuhópa. Og enn minni áhyggjur hafa þeir af gróðadrifinni verðbólgu, sem sprettur af umframhækkunum verðlags til að auka hagnað fyrirtækja, eða af ofurhækkunum leigusala. Það er sagt „eðlileg virkni frjálsra markaða“.
Ein algengasta mantra nýfrjálshyggju-hagfræðinga er að of miklar launahækkanir almennings séu helsta ef ekki eina orsök verðbólgunnar, þó það sé fjarri lagi að vera rétt.
Nú leggja þessir hagfræðingar til að vinnumarkaðsmódelinu á Íslandi verði breytt til að veikja verkalýðshreyfinguna og lækka launastig almennings í landinu. Þannig mætti auka hagnað „þeirra sem vel gengur“, þ.e. stórra atvinnurekenda og fjármagnseigenda. En í þessu samhengi vill gleymast að góður kaupmáttur almennings stuðlar að auknum hagvexti, því þá geta fyrirtækin selt þjóðinni meira og vaxið hraðar.
Almennt leggja þessir hagfræðingar nýfrjálshyggjunnar líka linnulaust til að velferðarríkið verði skorið niður (þið munið síbyljuna: „lækka útgjöld ríkisins“!). Oftast er það til að skapa enn meira svigrúm til að lækka skatta á þá sem best standa – eða til að skila hallalausum fjárlögum. Og þeir hæla ofurlágum fjármagnstekjuskatti á miklar eignatekjur um leið og þeir leggja til að vaxtabætur og leigubætur til tekjulægri hópa verði skornar niður.
Svona eru ríkjandi sjónarmiðin hjá áhrifamestu hagfræðingunum. Þau sem ekki eru nýfrjálshyggju-hagfræðingar eru í minnihluta, eða í öllu falli ekki í tísku.
Sjónarmið aukins ójafnaðar
Þessi sjónarmið áhrifamikilla hagfræðinga skýra margt af því sem hefur gerst í þróun vestrænna samfélaga á síðustu áratugum.
Þetta eru sjónarmiðin sem liggja að baki hinum aukna ójöfnuði tekna og eigna og niðurskurði velferðarríkja, sem hefur orðið víða á Vesturlöndum á síðustu áratugum.
Þetta eru sjónarmiðin sem mótuðu alþjóðavæðinguna.
Þetta eru sjónarmiðin sem breiddust fyrst út á hægri væng stjórnmálanna frá um 1980 en hafa í seinni tíð færst yfir á miðjuna líka – og jafnvel yfir á suma sósíaldemókrata.
Almenningur ætti að vera á varðbergi þegar spámenn nýfrjálshyggju-hagfræðanna stíga á stokk. Það boðar venjulega ekki gott fyrir þau sem eru í mesta baslinu.
Höfundur er prófessor emeritus við HÍ




















































Athugasemdir