Trump segist ekki líða tilraunir til að hægja á vexti gervigreindar

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir ekk­ert mega standa í vegi fyrir vexti gervi­greind­ar­iðn­að­ar­ins. Hann ætlar að stofna sér­staka „gervi­greind­ar­sér­sveit“ stjórn­valda og ætlar að skipa sér­stakan sam­ræm­ing­ar­að­ila í mála­flokknum.

Trump segist ekki líða tilraunir til að hægja á vexti gervigreindar

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti réðst á laug­ar­dag harka­lega gegn gagn­rýnendum gervi­greindar og gagna­vera og sagð­ist ekki ætla að leyfa „eyði­legg­ingu“ grein­ar­innar. Jafn­framt til­kynnti hann um stofnun nýrrar „gervi­greind­ar­sér­sveitar“ á vegum stjórn­valda.

Trump er á önd­verðum meiði við vax­andi efa­semdir almenn­ings um gervi­greind og alvar­legar örygg­is­við­var­anir leið­toga í gervi­greind­ar­iðn­að­inum. Hann sagði frjáls­lynda vilja „rústa eða eyði­leggja gervi­greind“.

„Ég, sem for­seti Banda­ríkj­anna, mun ekki sitja hjá og láta þetta ger­ast,“ skrif­aði hann á sam­fé­lags­miðil sinn Truth Social.

„Við munum á engan hátt hindra eða kæfa vöxt þess­arar ótrú­legu atvinnu­greinar. Þvert á móti munum við hlúa að henni, hjálpa henni og vaka yfir henni á meðan hún vex!“

Trump bætti við, án þess að útskýra nánar, að hann hygð­ist stofna „gervi­greind­ar­sér­sveit“ sem fengi það verk­efni að „leita að SLÆMUM“ aðilum. Þá sagð­ist hann brátt ætla að til­kynna um sér­stakan sam­ræm­ing­ar­að­ila, eða „keis­ara“, í mál­efnum gervi­greindar.

Þessi afdrátt­ar­lausa stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing Trumps við gervi­greind kemur þrátt …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár