„Við munum grípa til aðgerða í þágu réttláts og varanlegs friðar“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir boð­ar að­gerð­ir gegn ísra­elsk­um land­nem­um. Alls skrifa tólf ríki und­ir yf­ir­lýs­ingu þess efn­is.

„Við munum grípa til aðgerða í þágu réttláts og varanlegs friðar“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er á meðal tólf utanríkisráðherra sem sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu sem varðar viðskiptaþvinganir eða aðrar aðgerðir vegna ólöglegra landtökubyggða Ísraela í Palestínu sem grafa undan tveggja ríkja lausn.

Í yfirlýsingunni segir að aðgerðir ríkisstjórnar Ísraels á Vesturbakkanum grafi undan möguleika á tveggja ríkja lausn. „Ástandið versnar hratt samhliða fordæmalausu ofbeldi landnema og útþenslu landnemabyggða, þar á meðal þeirri óásættanlegu ákvörðun að auglýsa útboð vegna E1-landnemaverkefnisins.“

Fyrirhuguð byggð

Ísraelsk stjórnvöld samþykktu á síðasta ári svokallaða E1-áætlun um uppbyggingu landnemabyggða, eftir að áformin höfðu verið í biðstöðu um áratugaskeið, meðal annars vegna þrýstings frá bandarískum stjórnvöldum.

E1-landnemaverkefnið er áætlun um uppbyggingu á svæði á Vesturbakkanum á milli Austur-Jerúsalem og ísraelsku landnemabyggðarinnar Ma'ale Adumim. Samkvæmt áætluninni verða byggðar 1.200 íbúðir á Vesturbakkanum.

Framkvæmdirnar myndu einangra Austur-Jerúsalem, sem Ísrael hefur innlimað, enn frekar frá öðrum hlutum Vesturbakkans. Uppbyggingin er því afar umdeild, ekki síst vegna þess að hún …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár