Þrjú ungmenni látin eftir slys á Krýsuvíkurvegi

Pilt­ur og tvær stúlk­ur lét­ust í slysi í nótt.

Þrjú ungmenni látin eftir slys á Krýsuvíkurvegi

Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Tilkynning um slysið barst kl. 0.19, segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Vettvangur slyssinsÞau óku Krýsuvíkurveg til suðurs nálægt afleggjara að Bláfjallavegi.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár