Nokkrum starfsmönnum RÚV var sagt upp fyrir helgi og ákveðið hefur verið að ráða ekki í störf sem losna vegna starfsmannaveltu að því er fram kemur á vef RÚV. Það bætist við þau tíðindi að framleiðslu á sjónvarpsfréttum á Sýn hefur verið hætt. Ekki kemur fram hvort umræddu starfsfólki, sem var sagt upp, hafi starfað á fréttastofu RÚV eða á öðrum deildum RÚV.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að þetta sé hluti af hagræðingu í rekstri Ríkisútvarpsins að því er fram kemur í umfjöllun RÚV um málið. Hann segir að mikil verðbólga í ár og horfur á næsta ári hafi orðið til þess að óhjákvæmilegt væri að hagræða og fækka starfsfólki.
Starfsmönnum fækkar um sem nemur tíu til fimmtán stöðugildum. Það gerist að stórum hluta með því að ráða ekki í …

















































Athugasemdir