Sýn hættir framleiðslu á sjónvarpsfréttum og uppsagnir í vændum

Sýn hættir fram­leiðslu á sjón­varps­fréttum, sem þeir hafa gert í 40 ár. Starfs­fólki verður sagt upp.

Sýn hættir framleiðslu á sjónvarpsfréttum og uppsagnir í vændum
Sýn Frétta­stofan var lengst af kennd við Stöð 2.

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn hefur ákveðið að hætta fram­leiðslu og útsend­ingu á sjón­varps­fréttum frá og með morg­un­deg­inum, 1. sept­em­ber, að því er fram kemur á frétta­vef fyr­ir­tæk­is­ins, Vísi. Kemur þessi ákvörðun í kjöl­far þess að upp úr slitn­aði í samn­inga­við­ræðum Sýnar við fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Símann.

Starfs­fólki verður sagt upp að því er kemur fram í til­kynn­ingu. Eins kemur fram að hætt verði við fram­leiðslu og útsend­ingu á Íslandi í dag.

Frétta­stofa Sýnar, áður Stöðvar 2, hóf göngu sína þann 9. októ­ber árið 1986 og hefði orðið 40 ára gömul haust.

Í til­kynn­ingu sem Vísir greinir frá segir að stjórn­endur hafi tekið ákvörð­un­ina „í ljósi breyttra neyslu­venja almenn­ings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og frétta­tengt efni á staf­rænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að frétta­þjón­ustu á Vísi og Bylgj­unni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eft­ir­spurn eftir frétta­efni er mikil.“


Leið­rétt­ing: …
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Never mind contents, but it hurts the public discourse!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár