Norskur samningamaður segir SFS fara með rangt mál

Þaul­reynd­ur samn­inga­mað­ur frá Nor­egi gagn­rýn­ir mál­flutn­ing SFS harð­lega þeg­ar kem­ur að var­an­leg­um und­an­þág­um í sjáv­ar­út­vegi. Þó að Norð­menn hafi hafn­að að­ild að ESB hafi Nor­eg­ur náð slík­um samn­ing­um á sín­um tíma. Slíkt hið sama eigi við Finn­land og Sví­þjóð.

Norskur samningamaður segir SFS fara með rangt mál
Heiðrún Lind Framkvæmdastjóri SFS. Mynd: Heiða Helgadóttir

Norðmaðurinn Torben Foss segir fullyrðingar Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), einfaldlega rangar þegar kemur að varanlegum sérlausnum sjávarauðlinda í samningum Noregs við ESB, sem hún segir engin fordæmi fyrir. Þá undrast hann málflutning SFS þegar kemur að fullyrðingum um að varanlegar sérlausnir hafi ekki náðst hjá Noregi í sjávarútvegi.

Segir yfir allan vafa hafið að ríkið fái undanþágu

Torben segir það ekki bara mögulegt að ná sömu niðurstöðu fyrir Íslendinga, heldur sé það hans mat að slíkt sé yfir allan vafa hafið að Íslendingum muni takast það að ná undanþágu fyrir íslensk stjórnvöld þegar kemur að sjávarútvegi.

Nýjasta grein Torbens birtist í Morgunblaðinu í dag og er ein af nokkrum í ritdeilum Norðmannsins við framkvæmdastjóra SFS. Torben var fulltrúi norska sjávarútvegsráðuneytisins í samningum um EES og aðildarsamningum árið 1994 auk þess sem hann var ráðgjafi íslenskra stjórnvalda þegar samningaviðræður hófust við ESB árið 2009.

Torben Foss …
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Væri ekki frábært að byrta þessa grein opinberlega þ.e. að sem flestir án þess að vera áskrifandi geti lesið hana. Kv Áslaug
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár