Vildu senda unga menn með leikfangabyssur úr landi

Stjórn­mála­menn og áhrifa­vald­ar brugð­ust hart við frétt af mönn­um sem lög­regl­an á Ak­ur­eyri hand­tók fyr­ir vopna­laga­brot. „All­ir þeir sem voru hand­tekn­ir voru frá Mið-Aust­ur­lönd­um,“ skrif­aði nefnd­ar­mað­ur í Sjálf­stæði­flokkn­um á sam­fé­lags­miðli. Vopn­in reynd­ust vera leik­fanga­byss­ur en færsl­urn­ar standa óleið­rétt­ar.

Vildu senda unga menn með leikfangabyssur úr landi

Formaður Miðflokksins sagði að bregðast þyrfti við atburðum eins og ætluðu vopnalagabroti fimm ungra manna á Akureyri um helgina „annars missum við Ísland“. Stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling vildi láta henda þeim úr landi, annars mundi Ísland þróast í slæma átt.

Skömmu síðar kom í ljós að byssurnar voru leikföng.

Fimm menn í kringum tvítugt, sá yngsti 17 ára og sá elsti 22 ára samkvæmt frétt Vísis, voru handteknir af lögreglunni á Akureyri á sunnudag grunaðir um vopnalagabrot. Samkvæmt frétt RÚV barst lögreglunni tilkynning um menn með skotvopn í fórum sínum á tveimur bílum. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til og fann bílana mannlausa í miðbæ Akureyrar, nálægt svæðinu þar sem útihátíðin Ein með öllu fór fram.

Þegar mennirnir snéru aftur í bílana veitti lögreglan þeim eftirför. „Svo kemur í ljós, þegar verið er að fara á eftir þeim, að þeir eru að veifa einhvers konar vopni út úr ökutækjunum, eða …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Ef ég sæi leikfangabyssuna eins og hún er sýnd myndi ég ekki greina á milli hennar og alvöru vopns. Ég bý í Bandaríkjunum þar sem byssuofbeldi er allt of raunverulegt og oft eru það börn sem skjóta börn eins og á Columbine, Sandy Hook og mörg önnur atvik hér. Ég held líka að fyrir börn sem gera slíkt hafi munurinn á leikfangabyssu og alvöru byssu glatast. Ég held ekki að slík leikföng ættu að vera framleidd á þessum tímapunkti. Það er betra að elta fyrirtækin sem framleiða þau heldur en börnin - þar liggur sökin.
    1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Á ekkert að tékka á dótabúðinni,,Í frétt Vísis kom fram að leikföngin hafi verið keypt í Kids Coolshop á Glerártorgi fyrr um daginn.🙃
    0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Hvar er Dr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með Wintris skráð? Í Evrum í ESB?
    3
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Best væri að Dr. Sigmundur Davíð færi úr landi og kæmi aldrei aftur
    5
  • Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Er leyfilegt að selja svona hluti í verslunum?
    1
  • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Engu að síður getur það verið lögbrot að valda uppnámi og skelfingu á almannafæri, hvort sem notuð eru raunveruleg áhöld eða leikföng. Eftir atvikum getur slíkt verið sjálfstæð ástæða til að íhuga brottvísun ef brotið telst nægilega alvarlegt og viðkomandi er ekki íslenskur ríkisborgari. Hvort það á við í þessu tilfelli er ekki okkar að dæma sem stöndum fyrir utan málið.
    -1
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Ef að á að henda fólki úr landi sem hendleikur leikfangabissur þá þarf víst að henda hverju einasta íslensk mannsbarni sem komið er yfir 45 ára aldurinn því við lékum okkur öll í bissu og bófa leik, en að sjálfsögðu þá vorum við víst flest í "réttum lit" þannig að glæpurinn er kanski soldið minni fyrir vikið
    11
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Eins og ástandið er í heiminum er ekkert grín að vera að veifa "leikfangabyssum" á almannahátíðum og kosta útkall sérsveitar. Það þarf að taka hart á því.
    0
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Einn á Selfossi gerði þetta 2002 og hann var ekki sendur úr landi!
      Tveir í Reykjavík gerðu þetta 2019 og þeir voru ekki sendir úr landi!
      Einn á Þorlákshafnarvegi gerði þetta 2007 og hann var ekki sendur úr landi!
      Fimm í Reykjavík gerðu þetta 2022 og þeir voru ekki sendir úr landi!
      En allar byssurnar voru gerðar upptækar! :)
      En eins og "ástandið er í heiminum er" þá eru menn einstaklega taugaveiklaðir.
      10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
5
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár