Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi

Rabbíni gyð­inga á Íslandi virð­ist hafa safnað 436 millj­ónum króna frá nafn­lausum styrkj­endum til að kaupa og reka menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Fjár­festir sem er á svörtum lista í Bret­landi vegna tengsla við Rússland klippti á borð­ann. Hann hefur styrkt upp­kaup á heim­ilum Palest­ínu­manna til að stækka byggðir gyð­inga.

Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi
Skilti með nafni Shvidler – sem er á svörtum lista breskra stjórn­valda. Mynd: Golli

Þegar ný menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga var opnuð í gamla Fram­sókn­ar­hús­inu við Hverf­is­götu þann 7. júlí síð­ast­lið­inn, mátti sjá mynd á miðl­inum chabad.org þar sem Eugene nokkur Shvidler klippir á rauðan borða. Á sama miðli má lesa að kvöld­inu hafi lokið með þökkum til styrkt­ar­að­ila sem „með örlæti sínu hafi byggt mið­stöð­ina, þar á meðal Eugene Shvidler, sem með fram­tíð­ar­sýn, for­ystu og örlæti, hafi hjálpað til við að þróa mið­stöð­ina úr hug­mynd í bygg­ingu sem fólk gæti raun­veru­lega gengið inn í og ​​fagnað gyð­ing­legu lífi.“

Ekki kom fram að Eugene Shvidler er á svörtum lista breskra yfir­valda vegna tengsla hans við Rússland og eignir hans þar voru frystar, þar á meðal ann­ars sveita­setur, íbúðir og flug­vél. 

Heim­ildin leit­aði svara við því hver hefði fjár­magnað mið­stöð gyð­inga á Íslandi, meðal ann­ars kaup á hús­næði og fyr­ir­hug­uðum end­ur­bótum. Rabbín­inn, sem svar­aði hvorki sím­tölum né hringdi til baka eftir að skila­boðum hafði verið komið áleiðis, sagði þó skrif­lega að „gyð­inga­mið­stöðin á Íslandi hefði verið fjár­mögnuð með einka­fram­lögum frá fólki sem býr á Íslandi og fólki sem hefur heim­sótt Ísland“, en neit­aði að gefa upp hverjir styrkj­end­urnir væru. „Við virðum frið­helgi einka­lífs styrkt­ar­að­ila okkar og birtum ekki upp­lýs­ingar um fram­lög þeirra án leyfis þeirra.“

Kölluðu eftir framlögum 

Mið­stöðin sem kennd er við Shvidler var keypt árið 2024, af félagi rabbín­ans Avrahams Feldman, LG50. Húsnæðið er um 1.000 fer­metrar og í fréttum RÚV kom fram um dag­inn að kaup­verðið hafi verið um 325 millj­ónir og Avraham sagði það vera fjár­magnað með einka­fram­lögum.

Á síðu mið­stöðv­ar­innar jewishiceland.com má lesa að kaup og end­ur­bætur útheimti 3,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 455 millj­ónir króna. Þar segir: „Þú getur hjálpað okkur að ná marklín­unni!!“ Og fram kemur, með köku­riti, að nú hafi um 96 pró­sent safn­ast, sem þýðir að 437 millj­ónir króna hafi safn­ast. 

Þarna er að finna marga val­mögu­leika, vilji fólk styðja við mið­stöð­ina með drjúgum hætti. Fólk sem gefur veg­lega getur fengið veg­legan platta með nafni sínu. Hægt er að velja ýmsar leiðir. Fá hraun­platta ef gefnir eru 2500 Banda­ríkja­dali. Fyrir 5000 dali fæst hveraplatti. Geysis­plattan má fá fyrir 10.000 dali, Jökla­dem­ants­platta fyrir 18.000 dali, Norð­ur­ljósaplatta fyrir 36.000 dali og fyrir 54.000 Banda­ríkja­dali verður nafnið sýni­legt á Arctic Mezuzah-platta.

Á íslenskru útgáfu síð­unnar jewishiceland.com má svo lesa að mið­stöð­inni sé ekki stjórnað af neins konar aðal­skrif­stofum og eins að 100 pró­sent af öllum fram­lögum renni til gyð­inga­sam­fé­lags­ins á Íslandi.

Hins vegar er farið fram á að greiðslur séu stíl­aðar á Chabad of Iceland, sem skráð er í Brooklyn í New York-borg í Banda­ríkj­unum.

Rabbín­innRabbín­inn Avraham Feldman svar­aði fyr­ir­spurn blaða­manns án þess að veita efn­is­leg svör við spurn­ing­unum.
„Við virðum frið­helgi einka­lífs styrkt­ar­að­ila okkar og birtum ekki upp­lýs­ingar um fram­lög þeirra án leyfis þeirra“
Avraham Feldman
Rabbíni á Íslandi.

Kennir gyðingleg gildi 

Rabbín­inn Avraham Feldman, fyrsti rabbín­inn með fast aðsetur á Íslandi, kom til hingað til lands ásamt eig­in­konu sinni, Mushky Feldman, árið 2018 í því skyni að skapa ný tæki­færi fyrir sam­fé­lag gyð­inga. Þau voru send af Chabad-hreyf­ing­unni til að koma sér upp fastri við­veru.

Rabbín­inn til­heyrir Chabad-Lubavitch söfn­uð­inum.

Rabbíni Feldman útskrif­að­ist frá Rabbína­há­skóla Ameríku, auk þess að hafa þjónað gyð­inga­sam­fé­lögum í Banda­ríkj­unum, Evrópu og Ástralíu og jafn­framt starf­aði sem rabbíni og for­stöðu­maður Gyð­inga­stúd­enta­mið­stöðv­ar­innar í Berlín áður en hann sett­ist að á Íslandi. Á enskri kynn­ing­ar­síðu má lesa að Rabbíni Feldman kennir gyð­ing­leg gildi, sögu og hefðir í sam­fé­lag­inu, við stað­bundna háskóla og á sam­fé­lags­miðlum og frétta­miðlum.

Þá hefur rabbín­inn sagt að húsið muni gegna marg­þættu hlut­verki. Tímabært sé orðið að hafa fastan stað fyrir sam­fé­lag gyð­inga sem hefur búið á Íslandi í meira en 100 ár. Í fréttum frá 2018 má lesa að eftir að Feldman-hjónin fluttu hingað ásamt börnum sínum, hafi þau stofnað hóp­fjár­mögn­un­ar­síðu fyrir flutn­ing­ana og um sex millj­ónir króna safn­ast á aðeins hálfum sól­ar­hring. 

Nokkrar spurningar

En hver er Eugene Shvidler?

Nafn hans er grafið á nýrri plötu á vegg húss­ins, svo ætla má að fram­lag hans hafi verið rausn­ar­legt. Þess má geta að menn­ing­ar­húsið heitir í höfuð Shvidler: Beit Shvidler Jewish Center of Iceland. Beit Shvidler þýðir Hús Shvidler.

Eftir að hafa árang­urs­laust reynt að ná sím­sam­bandi og hitta rabbínan Avraham Feldman til að spyrja hann um upp­runa þess fjár­magns sem fékkst til að styðja við stofnun menn­ing­ar­mið­stöðvar gyð­inga í Reykja­vík, sendi Heim­ildin skrif­legar spurn­ingar:

Hvernig er mið­stöðin fjár­mögnuð, ​​hverjir eru fjár­mögn­un­ar­að­ilar hennar og hvaða upp­hæðir hefur hver styrkt­ar­að­ili lagt til?

Hvaða fjár­fram­lög hefur Eugene Shvidler lagt til mið­stöðv­ar­innar og hvers vegna ber mið­stöðin nafn hans?

Hefur mið­stöðin ein­hver bein eða óbein tengsl við Ísrael?

Hefur Chabad-Lubavitch hreyf­ingin ein­hver bein eða óbein tengsl við Ísrael?

Hver er afstaða rabbín­ans til stríðs­ins í Palest­ínu?

Seldi fyrir 13 milljarða

Þar sem svar rabbín­ans er skrif­legt og því beint að nokkrum ólíkum spurn­ingum, má lesa það í heild undir lok grein­ar­innar. Fyrst ber þó stikla á ýmsu sem tendraði áður­nefndar spurn­ingar. 

Eugene Shvidler þessi er auð­kýf­ingur, fæddur í fyrrum Sov­ét­ríkj­unum, og hefur verið svart­li­staður í Bret­landi vegna tengsla sinna við Roman Abramovich, rúss­neskan ólíg­arka og auð­kýf­ings, fyrrum eig­anda Chelsea FC og land­stjóra Chukotka í átta ár, hér­aðs í norð­ur­hluta Rúss­lands. Árið áður en Abramovich hætti sem land­stjóri hafði Pútin hafnað beiðni hans um að segja af sér og beðið hann um að halda áfram, sem hann sam­þykkti.

Abramovich með PútínEugene Shvidler var svart­li­staður í Bret­landi vegna tengsla sinna við Roman Abramovich, rúss­neskan ólíg­arka og auð­kýf­ings, sem er hér með Pútín.

Árið 2005 hafði Abramovich selt hlut sinn í olíu­fé­lag­inu Sibneft aftur til hins rík­is­rekna olíu­fé­lags Gazprom fyrir 13 millj­arða doll­ara. Upphæð sem er sögð hafa myndað grunn­inn að auð­æfum hans. Fram kemur í rann­sókn Stofn­unar um rann­sókn­ar­blaða­mennsku (The Bureau of investigative journalism) að Eugene Shvidler hafi per­sónu­lega fengið lán­aðar 637 millj­ónir Banda­ríkja­dala frá Abramovich, eða um 80 millj­arða króna, og þar af hafi minnst 545 (69 millj­arðar króna) virst vera í reynd gjöf til fjöl­skyldu hans.

Abramovich neydd­ist til að selja Chelsea FC þegar breska rík­is­stjórnin, í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu, beitti refsi­að­gerðum gagn­vart honum, í mars árið 2022, þar sem sýnt þótt að hann væri einn af fáum fámenn­is­stjórn­endum frá tíunda ára­tugnum sem áfram væru áber­andi undir stjórn Pútíns. Þá hefur hann mót­mælt svip­uðum refsi­að­gerðum innan Evr­ópu­sam­bands­ins og talið sig fremur vera skot­mark vegna frægðar en tengsla sinna við Pútín. Þess má geta að hann er með rúss­neskan, portú­galskan og ísra­elskan rík­is­borg­ara­rétt.

Fjármagnar líka yfirtöku heimila Palestínumanna

Við­skipta­fé­laga Abramovich, Eugene Shvidler, hefur heldur ekki tek­ist að fella úr gildi við­skipta­þving­anir sem breska rík­is­stjórnin lagði á hann eftir inn­rás Rússa í Úkraínu sem hluta af aðgerðum gegn fámenn­is­stjórn­endum og emb­ætt­is­mönnum tengdum Rúss­landi. Raunar var dómur Hæsta­réttar þar ytra tal­inn vera próf­raun fyrir við­skipta­þving­un­ar­kerfi Bret­lands.

Shvidler hefur mót­mælt að hann sé ekki nógu tengdur Abramovich til að það rétt­læti aðgerð­irnar en hann hefur setið í stjórn fyr­ir­tækja í eigu Abramovich.

Shvidler er þekktur alþjóð­legur styrkt­ar­að­ili Elad (Ir David-sjóðs­ins) – sem meðal ann­ars hefur keypt upp eignir Palest­ínu­manna í Austur-Jer­úsalem til að umbreyta þeim í heim­ili fyrir gyð­inga – en sjóð­ur­inn rekur hið umdeilda forn­leifa­svæðið Borg Davíðs og eflir byggð gyð­inga í hverf­inu Silwan í Austur-Jer­úsalem. Hann hefur líka verið öfl­ugur styrkt­ar­að­ili gyð­inga­skóla og mennta­mið­stöðva og á vef The The Jewish Chronicle má lesa eft­ir­far­andi í grein síðan í mars árið 2022:

„Vel­gjörð­ar­maður gyð­inga­skóla í London sem ber nafn hans er á nýjasta lista yfir rúss­neska fámenn­is­stjórn­endur sem refsað hefur verið af bresku rík­is­stjórn­inni. Eugene Shvidler var aðal­gjaf­inn að nýju heim­ili Beit Shvidler fyrir 10 árum, sem áður hét Edgware Jewish Primary School. Stjórn­völd sögðu að Shvidler, sem er met­inn á 1,2 millj­arða punda, hefði „náin við­skipta­tengsl“ við Roman Abramovich, sem sjálfur var settur á refsilist­ann fyrir tveimur vikum.“

Mið­stöðin vígðRabbín­inn Avraham og Muskhy, eig­in­kona hans, fagna með Eugene Shvidler og fleirum. Myndin er tekin af vefnum: chabad.org.

Snekkjan lá við Reykjavíkurhöfn 

Í frétt á Vísi síðan í júní árið 2021 má svo lesa um skipa­komur. Þar segir að tvær lúx­us­snekkjur rúss­neskra auð­jöfra séu við Reykja­vík­ur­höfn. Annars vegar snekkjan Sailing Yacht A og hins vegar glæsifleyið Le Grand Bleu. Þá segir:

„Hin skútan, Le Grand Bleu, er í eigu rúss­neska olíu­bar­óns­ins Eugene Shvidler. Snekkjan er 113 metrar á lengd og var sú 36. lengsta sinnar teg­undar í heim­inum árið 2019, sam­kvæmt Wikipedia-síðu snekkj­unnar.“ Þar kemur jafn­framt fram að Shvidler hafi eign­ast hana er hann vann veð­mál við fyrri eig­anda, sam­landa sinn Roman Abramovich.

Aftur kom Shvidler til lands­ins þegar menn­ing­ar­húsið var opnað á dög­unum. Og Shvidler vígði það.

„Ég er ekki full­trúi Ísraels né tala fyrir neina rík­is­stjórn“
Avraham Feldman

Skipulagt gyðingalíf ekki til staðar

En spurn­ing­arnar voru fleiri, eftir að rýnt hafði verið í fjöl­miðla í Ísrael og lesið um opnun menn­ing­ar­húss­ins þar.

Í ísra­elska fjöl­miðl­inum The Times of Israel má lesa nýlega frétt með fyr­ir­sögn á þá leið að minnsta gyð­inga­sam­fé­lag Evrópu hafi fundið sér heim­ili. Um sé að ræða rúm­góða bygg­ingu í Reykja­vík sem áður hafi hýst krá en þjóni nú sem fyrsta var­an­lega mið­stöð gyð­inga­lífs í borg­inni og sé nú leið­andi í því að vera nyrsta Chabad-hús heims.

Fréttin hefst á þessa leið: „Þar til nýlega var þessi borg, sem er stað­sett nálægt norð­ur­heim­skauts­baug, einn fárra staða í Evrópu þar sem skipu­lagt gyð­inga­líf var ekki til staðar — engin sam­kundu­hús, engin helgi­böð, engin sam­eig­in­leg bygg­ing. Það breytt­ist í þess­ari viku þegar gyð­inga­sam­fé­lagið á Íslandi opn­aði Beit Shvidler gyð­inga­mið­stöð­ina á Íslandi, fyrstu gyð­inga­mið­stöð lands­ins.“

Svipaða frétt má finna í The Jerusalem Post, í formi við­tals með fyr­ir­sögn­inni Hjón í Chabad breyta litlum draumi í sögu­fræga fyrstu gyð­inga-menn­ing­ar­mið­stöð Íslands. Og „Fyrsta for­gangs­verk­efni okkar var ein­fald­lega að tengj­ast fólki á per­sónu­legu stigi, ein­stak­lings­bundnu, og kom­ast að því hvað fólki finnst vanta,“ sagði rabbíni Feldman.

Mið­stöðinMið­stöðin stendur á Hverf­is­götu. Hún er ekki opin almennum veg­far­endum, heldur þarf að dingla dyra­bjöllu og athuga hvort þér verði hleypt inn.

Skrifa íslenska kaflann 

Í miðl­inum The Jewish Star má svo lesa frétta­skýr­ingu með fyr­ir­sögn­inni: „Á Íslandi dreifir Chabad ljósi Hashems á hátindi heims­ins.“

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar má lesa:

„Opnunin hlaut við­ur­kenn­ingu frá æðstu stjórn­völdum á Íslandi. Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur verið gestur við­burða gyð­inga­sam­fé­lags­ins áður, sendi bréf þar sem hún lýsti mið­stöð­inni sem „mik­il­vægum áfanga fyrir gyð­inga­sam­fé­lagið og fyrir sam­fé­lag Gyðinga“ og lýsti von um „áfram­hald­andi sam­starf milli gyð­inga­sam­fé­lags­ins og rík­is­stjórnar Íslands.“

„Saman erum við að skrifa íslenska kafl­ann í sögu gyð­inga­þjóð­ar­innar“

Í grein­inni er einnig greint frá því að Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti Alþingis, hafi skrifað sér­stak­lega til að minn­ast til­efn­is­ins. Kvöldinu hafi lokið með þökkum til þeirra sem með örlæti reistu mið­stöð­ina, þar á meðal Eugene Shvidler, sem með fram­tíð­ar­sýn og örlæti hjálp­aði til við að þróa mið­stöð­ina frá hug­mynd í bygg­ingu sem fólk gæti raun­veru­lega gengið inn í og ​​fagnað gyð­ing­legu lífi, góð­gerð­ar­mann­anna Isaac og Tovah Cohen, George og Pamelu Rohr, Shmuel Isaac og Miriam Popack sjóðs­ins og Dovid og Rivku Feldman. 

„Saman erum við að skrifa íslenska kafl­ann í sögu gyð­inga­þjóð­ar­innar,“ er svo vitnað í rabbín­ann Feldman.

Þar er einnig fjallað um að Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, hafi verið við­staddur en á Facebook sagði hann sjálfur frá því að hann hefði lesið ávarp for­sæt­is­ráð­herra og flutt stutta tölu. Í grein­inni er meðal ann­ars vitnað í þau orð hans að nýja mið­stöðin sé „lif­andi skóla­brú.“ 

Samningur við Ísraelsher

Ætla má að margs­konar starf eigi sér stað innan mið­stöðva kenndra við Chabad-Lubacitch. Mið­stöðvar Chabad-Lubacitch eru meira en 5.000 tals­ins og eru starf­ræktar í meira en 100 löndum, þar á meðal í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna.

Í Ísrael er hreyf­ingin með tengsl við ísra­elska her­inn, styður við trú­ar­lega starf­semi hers­ins og veitir her­mönnum stuðn­ing sem og hug­mynda­fræði „Stór-Ísraels“. Skuld­bind­ing Chabad við Ísrael, þar í landi, bygg­ist á þeirri trú að landið sé mið­lægt í lífi gyð­inga, þó að þeir snúi sér almennt frá stjórn­mála­flokkum og ein­beiti sér í stað­inn að trú­ar­legri og félags­legri þátt­töku. Á síðu höf­uð­stöðv­anna kemur fram að Chabad-Lubavitch veiti yfir­mönnum, her­mönnum og fjöl­skyldum þeirra sem eru gyð­ingar og stað­settir um allan heim huggun og leið til að við­halda and­legri teng­ingu við gyð­ing­dóm­inn. 

Þá má lesa á mizrachi.org um samn­ing við ísra­elska her­inn þess efnis að koma á fót fjölda­ráðn­ingum yes­hiva-nem­enda í her­inn. Samkvæmt fréttum sem birtar eru í Maariv mun Ísra­els­her leyfa Chabad-fylgj­endum að yfir­gefa landið í tvö ár – til að stunda fræði í New York, eins og hefð er fyrir, og síðan snúa aftur til Ísraels, stofna heim­ili, stunda nám í annað ár í kirkju og ganga síðan í her­inn. 

Í Ísrael veitir hreyf­ingin ísra­elska hernum (IDF) víð­tækan stuðn­ing, jafnt and­legan og hag­nýtan. Þar er safnað pen­ingum fyrir Ísrael, þá sér­stak­lega í átökum. Innan Chabad-Lubacvitch í Ísrael virð­ist vera vax­andi sam­staða með hægri­s­inn­aðum ísra­elskum stjórn­mála­mönnum á borð við þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herr­ann Itamar Ben-Gvir sem leitt hefur öfga hægri­flokk­inn Gyð­inga­vald (Otzma Yehudit) – en hug­mynda­fræði­leg tengsl virð­ast flétt­ast saman í gegnum harð­línu­hreyf­ingar hægri manna og þjóð­ern­is­sinn­aðra aðila innan Chabad-Lubavitch hreyf­ing­ar­innar.

Varaði við afsali á svæði gyðinga 

Í svörum rabbín­ans Avraham Feldman segir hann að þau séu inn­blásin af sýn Lubacitcher-rabbín­ans Menachem Schneerson en hann var einn áhrifa­mesti leið­togi Chaband-Lubavitch hreyf­ing­ar­innar. 

Sé aftur vitnað í The Jerusalem Post, grein síðan í júlí, má lesa að af þeim mörgu orr­ustum sem rabbíni sá háði fyrir hönd Gyð­inga­þjóð­ar­innar séu skoð­anir hans varð­andi shleimut ha'aretz – varð­veislu land­helgi og landamæra Ísraels – meira við­eig­andi en nokkru sinni fyrr „… fyrir þá stöðu sem við búum við í dag.“ Þá segir að leið­togi Chabad-hreyf­ing­ar­innar hafi trúað og haldið því ein­dregið fram að afsal á hvaða svæði sem væri undir stjórn Ísraels myndi stofna lífi Gyðinga og ann­arra í hættu. „Þetta er aug­ljós­lega afar við­eig­andi fyrir atburði síð­asta árs og þær ákvarð­anir sem Ísrael tekur nú og á næstu dögum, vikum og mán­uðum.“

Ein eins og áður sagði er hreyf­ingin fjöl­þjóð­leg og leiða má líkum að því, í ljósi þess hversu útbreidd Chabad-Lubavitch-hreyf­ingin er, að mið­stöð­inni á Íslandi muni takast að fjár­magna sig ágæt­lega, auk sinna bak­hjarla, sem áður hefur verið um getið.

„Ég er ekki fulltrúi Ísraels“ 

Rabbín­inn, Avraham Feldman, svar­aði öllum spurn­ing­unum Heim­ild­ar­innar skrif­lega á þessa leið:

„Gyð­inga­mið­stöðin á Íslandi hefur verið fjár­mögnuð með einka­fram­lögum frá fólki sem býr á Íslandi og fólki sem hefur heim­sótt Ísland. Við virðum frið­helgi einka­lífs styrkt­ar­að­ila okkar og birtum ekki upp­lýs­ingar um fram­lög þeirra án leyfis þeirra.

Það er nokkuð algengt að gyð­inga­mið­stöðvar veiti styrkt­ar­að­ilum við­ur­kenn­ingu með því að gefa þeim nafn sitt á skilti og minnis­plötum. Við höfum einnig mörg nöfn inni í hús­inu.

Til­gang­ur­inn með menn­ing­ar­húsi gyð­inga er að þjóna sam­fé­lag­inu á staðnum. Við erum ekki hér til að vera full­trúar ann­arra landa. Markmið okkar er að vera hluti af sam­fé­lag­inu og leggja okkar af mörkum á hvaða jákvæðan hátt sem við getum.

Sem aðalrabbíni á Íslandi er hlut­verk mitt að þjóna sam­fé­lag­inu á staðnum. Ég er ekki full­trúi Ísraels né tala fyrir neina rík­is­stjórn. Ég ein­beiti mér að mennta-, menn­ingar- og sam­fé­lags­starfi.

Við biðjum dag­lega fyrir var­an­legum friði og fyrir öryggi og vel­ferð allra sak­lausra ein­stak­linga.

Markmið Chabad Lubavitch er að gefa öllum tæki­færi til að kanna og fagna gyð­ing­legri arf­leifð sinni og tengj­ast gyð­ing­legri sjálfs­mynd sinni. Þetta var það sem Lubavitcher-rabbín­inn (rabbín­inn Menachem Schneerson 1902-1994) barð­ist fyrir og við erum inn­blásin af þeirri sýn og umhyggju sem hann sýndi hverjum ein­stak­lingi, bæði gyð­ingum og öðrum.

Við leggjum áherslu á að þjóna stað­bundnu gyð­inga­sam­fé­lagi, sem og að miðla gyð­ing­legri menn­ingu og menntun til almenn­ings.

Í hús­inu opnum við brátt „Safn um líf gyð­inga á Íslandi“, sem verður fasta­sýn­ing á sögu­legum ljós­myndum, skjölum og sögum sem spanna meira en 100 ára gyð­inga­líf. Þetta verður frá­bær leið fyrir Íslend­inga til að læra um hvernig íslensk saga og gyð­inga saga skar­ast á ein­stakan hátt, sem og að læra um líf gyð­inga á Íslandi í dag.“

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár