„Við getum haft raunveruleg áhrif“

„Við get­um enn haft áhrif á ná­kvæm­ar af­leið­ing­ar og lík­ur á stöðv­un AMOC,“ seg­ir haffræð­ing­ur­inn Paul Hol­land. Al­þjóð­leg­ur hóp­ur vís­inda­manna sigl­ir í dag frá Bretlandi til Græn­lands til að rann­saka hraða bráðn­un íss­ins og kort­leggja áhrif á haf­strauma.

„Við getum haft raunveruleg áhrif“

Alþjóðlegur hópur vísindamanna siglir í dag frá Bretlandi til Grænlands til að rannsaka hraða bráðnun íssins þar með drónum, litlum kafbátum og sjálfstýrðum sundvélmennum.

Íshella Grænlands, sem samanstendur af milljónum rúmkílómetra af ferskvatni, bráðnar hratt vegna hlýnunar jarðar og vísindamenn telja að það gæti raskað mikilvægum hafstraumum í Atlantshafi sem stjórna veðurfari heimsins.

Vegna hættulegra aðstæðna, þar sem ísjakar „kelfa“ eða brotna af á ófyrirsjáanlegan hátt, hefur vísindamönnum reynst erfitt að rannsaka bráðnunina af návígi.

Nota hátækni og sjávarvélmenni

Heimskautarannsóknaskipið RRS Sir David Attenborough, nefnt eftir hinum fræga breska náttúrufræðingi og sjónvarpsmanni, lagði úr höfn í Harwich í suðausturhluta landsins með tugi alþjóðlegra vísindamanna um borð.

Verkefnið, sem kostar 20 milljónir punda og er undir forystu bresku heimskautarannsóknastofnunarinnar, er fjármagnað af breskum stjórnvöldum.

Í um fimm vikur munu vísindamennirnir sigla um firði sem liggja meðfram suðausturströnd Grænlands og rannsaka jökla frá öllum …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár