Megas er látinn

Lista­mað­ur­inn og söngvaskáld­ið Megas er lát­inn.

Megas er látinn
Megas Er látinn 81 árs að aldri. Mynd: mbl/Einar Falur

Magnús Þór Jónsson, betur þekktur undir listamannanafni sínu Megas, er látinn, 81 árs að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund.

Megas gaf sína fyrstu plötu út árið 1972 og síðan út hina rómuðu plötu Millilendingu árið 1975. Eftir hann liggur fjöldi hljómplatna, sem og bækur.

Einstakt söngvaskáld

Megasi hefur verið lýst sem einstöku söngvaskáldi en hann var sonur skáldkonunnar Þórunnar Elfu Magnúsdóttur og Jóns Þórðarsonar kennara og rithöfundar.

Megas byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð, lærði á píanó og samdi meðal annars lagið um Gamla sorrí Grána fyrir fermingu. Á gagnfræðaskólaárunum samdi hann menúetta áður en hann hellti sér út í þjóðlagapælingar, keypti sér nótnabók með amerískri alþýðutónlist og lagði sig eftir skandinavískum þjóðlögum.

Litríkur ferill

Frá æskuárum Megasar er einnig til fjöldi teikninga af ýmsum toga sem hann hefur haldið til haga. Helstu áhrifavaldar Megasar á æskuárum hans voru Halldór Laxness og Elvis Presley.

Um jólin 1968 gaf hann út bókina Megas, sem innihélt lögin Dauði Snorra Sturlusonar, Jón Sigurðsson & sjálfstæðisbarátta Íslendinga, Með gati, Ófelía, Ragnheiður biskupsdóttir, Silfur Egils, Um óheppilega fundvísi Ingólfs Arnarsonar, Um skáldið Jónas, Um grimman dauða Jóns Arasonar og Vertu mér samferða inn í blómalandið, amma.

Nótur og textar

Stuttu síðar kom út annað heftið og það þriðja árið 1973, sem hét Megas kominn, en fráleitt farinn. Áður en fyrsta hljómplata hans kom út í Noregi árið 1972 komu út eftir hann þrjú hefti með textum, nótum og teikningum. Þau hétu einfaldlega Megas I (1968), Megas II (1969) og Megas III (1970). Árið 1973 gaf hann heftin þrjú út aftur, endurskoðuð, og bætti fjórða heftinu við, Megas IV. Margt af því efni sem birtist í heftunum átti síðar eftir að rata inn á plöturnar hans.

Megas var á heiðurslistamannalaunum og margverðlaunaður listmaður.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Snyllingur sem minnst verður að eilífu.
    1
  • MMG
    Magnús Mörður Guðbjörnsson skrifaði
    Fallinn er frá stórkostlegur listamaður og stórmerkilegur karakter, takk fyrir að vera þú!!!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár