Uppsagnir enn í gangi: Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar

Enn er ver­ið að segja upp starfs­fólki borg­ar­inn­ar á fund­um með borg­ar­rit­ara. Tvö svið að minnsta kosti lögð nið­ur og fleiri upp­sagn­ir á skrif­stofu borg­ar­stjóra.

Uppsagnir enn í gangi:  Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar
Nýr meirihluti Borgarfulltrúar sitja nú á fundi borgarráðs. Mynd: Golli

Uppsagnir standa enn yfir hjá Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar þegar þetta er ritað, en ráðið verður lagt niður að því er RÚV greindi frá. Ákvörðunin var tekin á fundi borgarráðs í hádeginu en borgarstjórn mun útskýra atburði dagsins frekar eftir fund borgarráðs klukkan fjögur í dag.

Umfangsmiklar skipulagsbreytingar eru á döfinni innan Ráðhúss Reykjavíkur á fleiri sviðum innan skrifstofu borgarstjóra. Þannig stendur til að breyta eða leggja niður stefnumótunar- og þróunarteymi borgarinnar, en verkefnin þar voru að hluta til undir atvinnu- og borgarþróun sem var lagt niður í þeirri mynd fyrir ári.

Á vef borgarinnar segir að stefnumótunar- og þróunarteymi styðji við framgang áherslumála borgarstjóra og taki þátt í verkefnum sem kalla á þróun, stefnumótun eða samhæfingu ásamt umsjón alþjóðlegra rannsókna- og nýsköpunarverkefna. Teymið leiðir samhæfingu stefnumótunar innan Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með innleiðingu og eftirfylgni á Græna planinu, lýðheilsustefnu, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár