Töldu sig hlunnfarna um hálfan milljarð í fiskeldisviðskiptum

Þrír minni­hluta­hlut­haf­ar í Löx­um eign­ar­halds­fé­lagi, sem seldi helstu eign­ir sín­ar til lax­eld­isris­ans sem nú heit­ir Kald­vík ár­ið 2022, töp­uðu máli gegn norsk­um meiri­hluta­eig­anda fé­lags­ins og end­ur­skoð­enda­skrif­stof­unni Deloitte. Bentu hlut­haf­arn­ir með­al ann­ars á kaup Ís­fé­lags­ins og Jens Garð­ars Helga­son­ar máli sínu til stuðn­ings.

Töldu sig hlunnfarna um hálfan milljarð í fiskeldisviðskiptum
Fiskeldi Þvert á röksemdir minnihlutaeigendanna taldi héraðsdómur að kaup Ísfélagsins og Jens Garðars á hlutum í félaginu sem nú heitir Kaldvík renna stöðum undir að hluthafar hafi allar hagnast á sölu eigna Laxa. Mynd: Stundin

Leiti eignarhaldsfélag, Helgi G. Sigurðsson og Jóhannes Skagfjörð Sigurðsson, töpuðu á mánudag skaðabótamáli í héraðsdómi Reykjavíkur gegn norska fiskeldisfyrirtækinu Heimstø AS og Deloitte.

Málið snýst um viðskipti frá maí 2022. Þá seldi Laxar eignarhaldsfélag ehf. helstu eignir sínar – allt hlutafé í Löxum Fiskeldi ehf. og 33,3% í Búlandstindi ehf. – til norska félagsins Ice Fish Farm AS, sem nú heitir Kaldvík. Greiðslan var ekki í peningum heldur í hlutabréfum í Ice Fish Farm AS.

Heimstø AS var stærsti hluthafi beggja félaga og því þurfti að bera viðskiptin undir hluthafafund í Löxum eignarhaldsfélagi, þar sem þau voru samþykkt 30. maí 2022. Stefnendur, sem voru minnihlutahluthafar í Löxum eignarhaldsfélagi, héldu því fram að eignirnar hefðu verið seldar á undirverði.

Þeir vildu meina að ákvörðunin um sölu á fyrirtækinu hefði verið tekin á grundvelli ófullnægjandi, rangra og hlutdrægra upplýsinga endurskoðandafyrirtækisins Deloitte. Þannig hefðu þeir, ásamt þriðja hluthafanum, verið hlunnfarnir um tæpan hálfan …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár